Hundrað herbergja hótel á stærri skíðaskálalóð Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. janúar 2015 07:00 Við Skíðaskálann í Hveradölum er talsverður jarðhiti. FRÉTTABLAÐIÐ/pJETUR
Stækka á lóðina við Skíðaskálann í Hveradölum upp í 46 hektara vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu. „Nánast öll uppbyggingin er á þegar röskuðu svæði sem hefur verið útivistarsvæði í áratugi,“ segir í fundargerð skipulagsnefndar Ölfuss. „Reiknað er með að byggja um 100 herbergja hótel en Skíðaskálinn verður áfram sjálfstæður veitingastaður í endurbættri mynd. Byggja á um tíu þúsund fermetra lón í botni Stóradals.“ Þá kemur fram að lónið og byggingar sem því fylgja eigi að vera nánast huldar frá þjóðveginum af lágreistum húsum sem falli vel að umhverfinu. „Svæðið á að vera áfram fyrir göngu- og hjólahópa. Þarna verður lítil verslun og önnur þjónusta við útivistarfólk. Skíðaskálinn er hugsaður sem bækistöð fyrir náttúruunnendur og aðra sem vilja hreyfa sig og njóta útiverunnar. Setja á upp skíðalyftu á sama svæði og gamla lyftan var í Hveradölum,“ segir áfram. Engar athugasemdir bárust við aðalskipulagsbreytinguna áður en frestur til athugasemda rann út 15. desember. Skipulagsbreytingin verður því unnin og send Skipulagsstofnun sem segir um hvort vinna skuli umhverfismat vegna breytingarinnar og auglýsa hana samhliða auglýsingu á aðalskipulagsbreytingunni. Tekið er fram að við hönnun og framkvæmd þurfi að gæta þess að grunnvatn mengist ekki. Skíðaskálinn stendur í landi Orkuveitu Reykjavíkur.
Mest lesið Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Erlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Innlent Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Erlent Fleiri fréttir D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Sjá meira