Ekki stefnubreyting að hafna gjafsókn Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. nóvember 2015 07:00 Iz El Din kom til Íslands fyrir ári og hefur átt við alvarlegt þunglyndi að stríða.
Ávallt fer fram einstaklingsbundið mat á því hvort veita eigi gjafsókn vegna málareksturs, einnig þegar sótt er um gjafsókn þar sem ætlunin er að leggja fyrir dómstóla að fara yfir niðurstöðu kærunefndar útlendingamála. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn Fréttablaðsins um hvort stefnubreyting hafi orðið í gjafsóknarveitingu hælisleitenda sem skulu sendir burt á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Einnig segir að gjafsókn sé einungis veitt ef gjafsóknarnefnd mæli með því. Við mat á gjafsókn er grundvallarskilyrði að málstaður umsækjanda gefi nægilegt tilefni til málshöfðunar. Í vikunni fengu þrír hælisleitendur synjun um gjafsókn sem lögmaður þeirra, Katrín Oddsdóttir, sagði afar óvenjulegt enda hefði verið þrýst á hana af meðal annars Rauða krossinum að taka málin að sér. Katrín tekur sem dæmi skjólstæðing sinn sem kemur frá Darfur í Súdan. Hann hefur vottorð frá læknum um að vera of veikburða og andlega veikur til að ferðast en ætlunin er að senda hann til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Þar bjó hann á götunni þar til hann kom til Íslands. „Ef ég verð sendur burt frá Íslandi, þá mun ég fyrirfara mér,“ segir Iz El Din Mouhammed, sem er átján ára gamall og hefur verið á flótta frá unga aldri. „Ég mun hoppa út um gluggann.“ Ólöf Nordal innanríkisráðherra hefur sagt opinberlega að ekki sé boðlegt að senda hælisleitendur til Ítalíu og Grikklands vegna aðstæðna þar. Í svari innanríkisráðuneytisins er áréttað að þegar niðurstaða Útlendingastofnunar er kærð þá fari endurskoðun á málinu fram hjá sjálfstæðri stjórnsýslunefnd, kærunefnd útlendingamála. „Þannig er fjallað um slík mál á tveimur stjórnsýslustigum.“
Tengdar fréttir Hælisleitandi frá Súdan óttast að verða sendur til Ítalíu Fær ekki gjafsóknarleyfi til að áfrýja ákvörðun Útlendingastofnunar til dómstóla. 5. nóvember 2015 19:45 Hælisleitendur fá ekki gjafsókn Lögmaður segir yfirvöld hafa breytt stefnu sinni án þess að kynna það formlega og neiti hælisleitendum um gjafsókn í dómsmálum. Gríðarlega alvarlegt sé að minnihlutahópur sé útilokaður frá dómstólum. 5. nóvember 2015 06:00 Mest lesið Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Innlent „Veiddu“ grænmetissala með dróna Erlent Fleiri fréttir Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Sjá meira
Hælisleitandi frá Súdan óttast að verða sendur til Ítalíu Fær ekki gjafsóknarleyfi til að áfrýja ákvörðun Útlendingastofnunar til dómstóla. 5. nóvember 2015 19:45
Hælisleitendur fá ekki gjafsókn Lögmaður segir yfirvöld hafa breytt stefnu sinni án þess að kynna það formlega og neiti hælisleitendum um gjafsókn í dómsmálum. Gríðarlega alvarlegt sé að minnihlutahópur sé útilokaður frá dómstólum. 5. nóvember 2015 06:00