Leggur til breytingar á þróunarsamvinnu Íslands Randver Kári Randversson skrifar 11. júlí 2014 16:18 Þórir Guðmundsson hefur skilað skýrslu um skipulag þróunarsamvinnu til utanríkisráðherra. Vísir/GVA
Þórir Guðmundsson hefur skilað utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, skýrslu um skipulag þróunarsamvinnu, friðargæslu og mannúðar- og neyðaraðstoð með það að markmiði að efla árangur og skilvirkni í málaflokknum, sem hann vann að beiðni ráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þórir ræddi við hátt í 200 manns hér heima og erlendis við vinnslu skýrslunnar auk þess sem almenningi og sérfræðingum gafst tækifæri til að senda inn athugasemdir. „Tillögur Þóris eru byggðar á faglegri og yfirgripsmikilli vinnu sem veitir góða yfirsýn yfir starf Íslands á sviði þróunarsamvinnu, friðargæslu og neyðar- og mannúðaraðstoðar. Þá er í skýrslunni að finna yfirlit yfir starfsemi annarra ríkja á þessu sviði og hvernig við getum nýtt okkur þeirra reynslu til að bæta starf okkar enn frekar,“ segir Gunnar Bragi. Meðal tillagna skýrslunnar er að skipulag þróunarsamvinnu verði á einum stað, í utanríkisráðuneytinu, og að Ísland skerpi áherslur og fækki samstarfslöndum í því skyni að auka skilvirkni og áhrifamátt framlaga sinna. Þá er lagt til að stofnuð verði þingmannanefnd um þróunarsamvinnu, samstarfsráð um alþjóðlega þróunarsamvinnu verði styrkt og eftirlit með verkefnum eflt með því að taka upp árangursstjórnun í öllum þáttum þróunarsamvinnu Íslands. Í aðdraganda aðildar Íslands að þróunarsamvinnunefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) lagði hópur sérfræðinga nefndarinnar til að íslensk stjórnvöld mætu skipulag og fyrirkomulag þróunarsamvinnu út frá því hvernig hámarks árangur og skilvirkni væru tryggð, með tilliti til smæðar landsins. Samskonar greiningar og tillögur eru reglulega unnar í þeim löndum sem Ísland ber sig saman við og er til marks um góða stjórnsýslu. Utanríkisráðherra segir mikilvægt að stjórnvöld skoði með reglubundnum hætti hvernig auka megi enn frekar árangur af þróunarstarfi og tryggja þar með að skattfé Íslendinga sé eins vel varið og kostur er. „Ég hvet áhugafólk um þróunarsamvinnu og þá sem starfa á þessu sviði til að kynna sér vandlega skýrslu Þóris og skiptast á skoðunum um tillögur hans,“ segir ráðherra. „Sjálfur ætla ég að kynna mér efni hennar frekar á komandi vikum og í kjölfarið taka ákvörðun um næstu skref.“
Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Fleiri fréttir Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Sjá meira