Segir ályktun bera keim af því að vilja gína yfir öllu stóru og smáu Kjartan Atli Kjartansson skrifar 9. október 2014 16:36 Sveinbjörg Birna greiddi atkvæði gegn tillögu Sjálfstæðisflokksins. Vísir/Pjetur
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokks og flugvallarvina, greiddi atkvæði móti ályktun borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í borgarráði sem snýr að því að hvetja ríkisstjórn til vandaðrar stjórnsýslu, ekki síst þegar fjalað er um mál sem varða stóra hópa starfsfólks opinberra stofnanna á borð við Fiskistofu. Sveinbjörg var eini borgarráðsfulltrúinn sem greiddi atkvæði á móti. Hún lagði til bókun vegna málsins:„Framsókn og flugvallarvinir samþykkja ekki ályktunartillögu borgarráðs, sérstaklega sem snýr að flutningi Fiskistofu, og telja það óeðlilegt út frá stærð og yfirburða styrks Reykjavíkur og höfuðborgarsvæðisins með tilliti til atvinnumöguleika, fólksfjölgunar, í menningar-, menntunarlegu og þjónustulegu tilliti, að Reykjavíkurborg sé að álykta um byggðarstefnu ákveðna af ríkisvaldinu. Ber það keim af því að vilja gína yfir öllu stóru og smáu. Er það ekki hlutverk Reykjavíkurborgar sem höfuðborgar að álykta um byggðastefnu ríkisins.“ Borgarráðsfulltrúar Sjáflstæðisflokksins lögðu fram eftirfarandi tillögu:„Borgarráð hvetur til vandaðrar stjórnsýslu af hálfu ríkisins, ekki síst þegar fjallað er um mál sem varða stóra hópa starfsfólks opinberra stofnana á borð við Fiskistofu. Ákvörðun um flutning Fiskistofu er dæmi um óundirbúinn og óvandaðan flutning stofnunar. Enda virðist niðurstaðan verða sú að fæst ef nokkuð af starfsfólkinu flytur með og ríkissjóður verður fyrir óþarfa kostnaði. Ráðherra er hvattur til þess að endurskoða ferli þessa máls og falla frá þessum áformum. Með sama hætti er erfitt að sjá hvernig ný stofnun sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur tilkynnt um á erindi út á land. Þörfin fyrir starfsemi stofnunar sem hefur með barnavernd, réttindagæslu fatlaðs fólks o.fl. er mest á höfuðborgarsvæðinu og á hún því að vera þar. Í anda vandaðrar stjórnsýslu þarf nefnd um endurskoðun stjórnsýslu ríkisins á sviði félagsþjónustu og barnaverndar að ljúka störfum. Við mótun byggðastefnu er kominn tími til að tekið verði tillit til höfuðborgarinnar sem mikilvægs útvarðar byggðar á Íslandi. Stefnumótun í byggðamálum þarf að taka mið af breyttum aðstæðum og þörfum íbúa landsins og viðurkenna mikilvægi höfuðborgarinnar.“ Tillagan var samþykkt með sex atkvæðum borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata. Tillagan fer til fullnaðarafgreiðslu borgarstjórnar með vísan til 1. mgr. 48. gr. samþykktar um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Sjá meira