Ofbeldismaðurinn með íbúðina og dótturina Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar 18. desember 2014 20:16
Kona sem dvelur í Kvennaathvarfinu eftir gróft heimilisofbeldi þurfti að láta ofbeldismanninum eftir íbúð sína og tveggja ára dóttur þeirra. Kvennaathvarfið segir lögreglu trega til að beita „austurrísku leiðinni“ og fjarlægja ofbeldismenn af heimilum. Í viðtali við DV í dag segist kona hafa búið við heimilisofbeldi síðastliðin þrjú ár og óttist að hún þurfi að verja jólunum í Kvennaathvarfinu. Á meðan búi sambýlismaður hennar frítt í íbúðinni hennar. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfisins, segist ekki vita um ástæður þessa og hreinlega ekki skilja það í ljósi þess að lögreglan hafi heimild til að fjarlægja manninn af heimilinu. „Okkur finnst það alveg óásættanlegt, bar alveg galið, fyrst að þessi leið er til og lögreglan á Suðurnesjum hefur sýnt fram á það að það sé hægt að nota hana í miklu ríkara mæli en nú er gert. Þá finnst okkur alveg út í hött að það sé ekki gert.“ Maðurinn sem um ræðir á langan sakaferil að baki og bíður þess að hefja afplánun. Það vekur athygli í ljósi þess sem gerst hefur að foreldrarnir skipta með sér forræði yfir barninu meðan konan dvelur í Kvennaathvarfinu.Er það ekki eitthvað sek skýtur skökku við í þessu tilfelli?„Það þykir okkur svo sannarlega hérna í Kvennaathvarfinu eins og gerir reyndar iðulega í málum okkar kvenna, að ofbeldismaður sem hefur beitt ofbeldi fyrir framan börn, eins og konan hefur tjáð sig um, skuli áfram hafa aðgengi að börnunum finnst okkur skrítið.“Hafið þið leitað skýringa hjá barnaverndaryfirvöldum og lögreglu af hverju þetta er svona?„Já, en við höfum ekki fengið svör sem við getum sætt okkur við.“ Alda Hrönn Jóhannesdóttir, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir að lögreglan sé að skoða málið. Ekki sé útilokað að gripið verði til aðgerða. Almennt sé verið að innleiða nýjar verklagsreglur í þessum málaflokki hjá lögreglunni.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira