Töldu Sævar hafa framið sjálfsvíg Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. júní 2014 15:26 Frá vettvangi. Vísir/Vilhelm
Lögreglumenn töldu líkur á því að Sævar Rafn hefði tekið eigið líf áður en þeir réðust inn í íbúð hans í Hraunbæ þann 2. desember síðastliðinn. Þetta er meðal þess sem fram kemur í greinargerð ríkissaksóknara um aðgerðir lögreglu sem birt var í dag. Lögreglan fékk tilkynningu klukkan 2:12 um nóttina þess efnis að mikill tónlistarhávaði kæmi frá íbúð Sævars. Tilkynnandi sagði íbúann hins vegar heita öðru nafni. Lögregla fletti nafni mannsins upp og hafði hann, ólíkt Sævari, aldrei komið við sögu lögreglu. Tveir lögreglumenn fóru á vettvang, ræddu við tilkynnanda sem taldi að um skothvell hefði verið að ræða. Í kjölfarið var sérsveit lögreglu ræst út. Ítrekað var knúið á dyr íbúðar Sævars þar sem mikil tónlist heyrðist. Þó voru engin merki um umgang í íbúðinni. Fram kom við skýrslutöku yfir sex lögreglumönnum sem voru á vettvangi að líkur hefðu verið taldar á að Sævar hefði tekið eigið líf.Vísir/VilhelmLásasmiður í engum hlífðarfatnaði Tilkynnandinn, sem hefur sinnt herþjónustu, fullyrti að um skothvell hefði verið að ræða og strax í kjölfarið hefði hann heyrt hnjask frá gólfi íbúðarinnar. Síðan hefði hann ekki heyrt annað en tónlist. Taldi hann Sævar hafa skotið sjálfan sig. Lásasmiður var fenginn á vettvang en sá var ekki klæddur í neinn hlífðarfatnað, s.s.skothelt vesti. Í greinargerðinni segir að hafa verði í huga að lögreglumenn gerðu ráð fyrir að Sævar hefði fyrirfarið sér. Reynt hafði verið að ná sambandi við hann í fimmtán mínútur áður en lásasmiðurinn kom á staðinn. Vinna lásasmiðsins tók nokkurn tíma og hafði í för með sér nokkurn hávaða. Sérsveitarmaður hélt skotskýlingarskildi upp við dyrnar á meðan á því stóð. Þó var ekki hægt að halda honum beint fyrir framan lásasmiðinn.Lét lífið af tveimur skotsárum Um leið og opnað hafi verið inn í íbúðina hafi einn lögreglumannanna kallað „byssa, byssa“ og í sömu andrá reið af skot sem lenti í skotskýlingarskyldi lögreglumanns. Taldar eru líkur á að umræddur lögreglumaður hefði slasast mjög alvarlega eða jafnvel látið lífið hefði skotið, sem var í augnhæð, hæft hann. Hann hafði ekki skothjálm á höfði. Lögreglumennirnir tveir, sérsveitarmennirnir tveir auk lásasmiðsins höfuðu niður á næsta stigapall í kjölfar skotsins. Er fullyrt í skýrslunni að Sævar hafi verið á stigapallinum fyrir ofan þá í um tíu mínútur og beint haglabyssu sinni niður stigann. Ekkert hafi hins vegar heyrst frá honum. Í kjölfarið fór í hönd umsátursástand sem lauk ekki fyrr en á sjöunda tímanum með innrás sérsveitarmanna. Lét Sævar lífið af tveimur skotskárum, öðru í brjóst og hinu í nára.
Tengdar fréttir Greinargerð ríkissaksóknara um Hraunbæjarmálið Rannsókn málsins tók sex mánuði og er afrakstur þeirrar rannsóknar greinargerð sem má lesa hér. 13. júní 2014 14:22 Skotárásin í Hraunbæ: „Kerfið gafst upp á honum“ „Það er ekkert að gerast sem bendir til þess að lærdómur sé dreginn af þessum hrikalega atburði,“ segir Gunnar Kr. Jónasson, bróðir Sævars Rafns Jónassonar sem féll fyrir hendi lögreglu í skotárás í Hraunbæ þann 2. desember í fyrra. 13. júní 2014 14:05 Lögregla braut ekki lög í Hraunbæjarmálinu Ríkissaksóknari úrskurðari í dag að lögreglan hefði farið að lögum þegar hún skaut Sævar Rafn Jónasson til bana í Hraunbæ í desember síðastliðnum. 13. júní 2014 14:42 Skotárásin í Hraunbæ: Niðurstöður rannsóknar ríkissaksóknara birtar í dag Rannsókn á aðgerðum lögreglumanna í Hraunbæjarmálinu svokallaða hefur staðið yfir í um hálft ár. Þetta er í fyrsta sinn sem maður fellur í átökum við lögreglu. Vísir fer yfir málið. 13. júní 2014 07:00 "Viss um að þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir Sævars Rafns Jónassonar, segir skýrslu ríkissaksóknara fegra störf lögreglu. 13. júní 2014 14:16 Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira
Greinargerð ríkissaksóknara um Hraunbæjarmálið Rannsókn málsins tók sex mánuði og er afrakstur þeirrar rannsóknar greinargerð sem má lesa hér. 13. júní 2014 14:22
Skotárásin í Hraunbæ: „Kerfið gafst upp á honum“ „Það er ekkert að gerast sem bendir til þess að lærdómur sé dreginn af þessum hrikalega atburði,“ segir Gunnar Kr. Jónasson, bróðir Sævars Rafns Jónassonar sem féll fyrir hendi lögreglu í skotárás í Hraunbæ þann 2. desember í fyrra. 13. júní 2014 14:05
Lögregla braut ekki lög í Hraunbæjarmálinu Ríkissaksóknari úrskurðari í dag að lögreglan hefði farið að lögum þegar hún skaut Sævar Rafn Jónasson til bana í Hraunbæ í desember síðastliðnum. 13. júní 2014 14:42
Skotárásin í Hraunbæ: Niðurstöður rannsóknar ríkissaksóknara birtar í dag Rannsókn á aðgerðum lögreglumanna í Hraunbæjarmálinu svokallaða hefur staðið yfir í um hálft ár. Þetta er í fyrsta sinn sem maður fellur í átökum við lögreglu. Vísir fer yfir málið. 13. júní 2014 07:00
"Viss um að þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Sigríður Ósk Jónasdóttir, systir Sævars Rafns Jónassonar, segir skýrslu ríkissaksóknara fegra störf lögreglu. 13. júní 2014 14:16