Óttast stórbruna og loka bílakjallara í Hamraborg Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. desember 2014 07:00 Tilkynningin til íbúa. Vísir/Ernir
Eldsvoði í bílageymslunni í Hamraborg 14 til 38 gæti orðið að stórbruna sem slökkvilið ræður illa við vegna lélegra brunavarna. Loka á bílakjallaranum á þrettánda degi jóla. „Á síðustu árum hefur slökkviliðsstjóri ítrekað krafist úrbóta á eldvörnum bílageymslunnar og verður að teljast fullreynt,“ segir Bjarni Karlsson, sviðsstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, í bréfi til húsfélagsins.Úr bílakjallaranum.Vísir/ErnirHúsfélaginu, svokölluðu Hamraborgarráði, var í bréfi Bjarna frá 12. nóvember gefinn frestur til 24. nóvember til að leggja fram staðfestingu á að eldvarnirnar yrðu bættar. Slík staðfesting barst ekki. „Vatnsúðarakerfi geymslunnar er með öllu óvirkt og án alls viðhalds og eftirlits af hálfu eigenda. Þá vantar hólfandi rennihurð að bensínstöð, út- og neyðarlýsingu er mjög ábótavant, brunahólfanir hafa verið rofnar að aðliggjandi rýmum og vafi leikur á brunahólfum í loftræstikerfum,“ dregur Bjarni saman um það helsta sem er í ólagi. Eigendur að Hamraborg eru yfir 210 talsins; einstaklingar sem eiga þar íbúðir og fyrirtæki auk Kópavogsbæjar sem á 18 prósent í fasteigninni. Bærinn greiðir hins vegar 55 prósent kostnaðar við rekstur og endurbætur á bílageymslunni.Eldvarnakerfið í Hamraborg 14-38 hefur aldrei virkað og eldhólfun milli bensínstöðvar og bílakjallara vantar.Fréttablaðið/ErnirÍ apríl á þessi ári voru opnuð níu tilboð sem bárust útboði í vatnsúðarakerfi sem aðalfundur Hamraborgarráðsins hafði samþykkt að efna til. Leggja átti fram tillögu stjórnar um að semja við AH Pípulagnir um verkið á fundi í ráðinu 27. nóvember. Gjaldkeri félagsins lagði hins vegar fram nýja tillögu með þrengri fjárheimildum sem fjölmennur félagsfundur samþykkti. Kópavogsbær segir þá samþykkt brjóta í bága við útboðsskilmálana og að hvorki bærinn né AH Pípulagnir samþykki niðurstöðuna. Fullri ábyrgð sé lýst á hendur Hamraborgarráðinu á því að ekki sé hægt að setja upp vatnsúðarakerfið. „Framganga Hamraborgarráðsins í þessu máli á líklega eftir að valda fyrirtækjum, íbúum og öðrum þeim sem leið eiga í Hamraborgina miklum óþægindum og fasteignaeigendum í Hamraborg 14-38 óþarfa kostnaði,“ segir í dreifibréfi Kópavogsbæjar til hagsmunaðila í húsinu. Bærinn sé þó tilbúinn að koma aftur að borðinu á fyrri grundvelli „en ekki forsendum samþykktrar tillögu gjaldkera Hamraborgarráðsins“. Búast má við mikilli röskun verði bílahúsinu lokað, meðal annars vegna skorts á öðrum bílastæðum og við sorphirðu.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Sjá meira