Innlent

Banaslys í umferðinni ekki færri síðan skráning hófst

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjórir hafa látist í þremur banaslysum í umferðinni, tvær konur og tveir karlar, það sem af er ári.
Fjórir hafa látist í þremur banaslysum í umferðinni, tvær konur og tveir karlar, það sem af er ári.
„Eins og staðan er núna þá hafa ekki orðið eins fá banaslys í umferðinni frá því skráning hófst árið 1966,“ segir Ágúst Mogensen, rannsóknarstjóri umferðaslysa hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa.

Fjórir hafa látist í þremur banaslysum í umferðinni, tvær konur og tveir karlar, það sem af er ári. Það er talsvert minna en í fyrra þegar fimmtán létust. Á síðustu tíu árum hafa sextán manns að jafnaði látist í umferðinni á ári.

Ágúst telur ýmsar skýringar á því af hverju banaslysum hefur fækkað.

„Þegar við skoðum þessi slys sjáum við að hörðum framanákeyrslum er að fækka. Þær voru flestar hér í kringum höfuðborgarsvæðið en það er búið að vinna heilmikið í því að aðgreina umferð við og á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann. Ágúst nefnir einnig að meðalhraði hafi lækkað og að slysum ungra ökumanna hafi fækkað.

„Þegar við erum að greina tölur um alvarleg umferðarslys og bílslys almennt, sjáum við mikla fækkun í slysum ungra ökumanna og það hefur orðið mikil breyting á ökunámi. Við sjáum reyndar almennt fækkun á miklum meiðslum, bæði banaslysum og alvarlegum slysum þar sem ökutæki koma við sögu. Svo verður að taka fram að það geta verið tilviljanasveiflur í þessu og við verðum að hafa það í huga,“ segir Ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×