Innlent

Í gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár: Grunaður um tilefnislausa líkamsárás gegn tveimur stúlkum

Bjarki Ármannsson skrifar
Maðurinn mun sæta gæsluvarðhaldi til 19. janúar.
Maðurinn mun sæta gæsluvarðhaldi til 19. janúar. Vísir/GVA
Hæstiréttur hefur framlengt gæsluvarðhald yfir grunuðum síafbrotamanni vegna rannsóknar á alvarlegri líkamsárás gegn tveimur stúlkum án nokkurs aðdraganda. Hann mun þurfa að sæta varðhaldi til 19. janúar næstkomandi.

Maðurinn var handtekinn þann 27. nóvember síðastliðinn, grunaður um að hafa ráðist á stúlkurnar. Samkvæmt greinargerð lögreglu hlaut önnur stúlknanna meðal annars heilahristing við árásina. Lögregla segist hafa upplýsingar um það að maðurinn hafi í kjölfar árasinnar sent sms-skilaboð þar sem hann kveðst „stoltur af háttsemi sinni.“

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði upphaflega kröfu lögreglu um gæsluvarðhald yfir manninum en Hæstiréttur felldi þann dóm úr gildi. Í úrskurði  Héraðsdóms eru rakin mörg mál þar sem maðurinn liggur undir grun fyrir refsiverða háttsemi, en hann hefur meðal annars verið kærður fyrir að hafa átt þátt í frelsissviptingu og grófu ofbeldi gegn átján ára dreng á Vogum í Vatnsleysuströnd í ágúst síðastliðnum.


Tengdar fréttir

Látinn sleikja frunsu og drekka smjörsýru

Pilturinn sem var sviptur frelsi sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd var í haldi ræningja sinna í næstum 8 klukkustundir. Meint brot þeirra eru talin varða fangelsisrefsingu í allt að 16 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×