Tjónið metið hátt í 200 milljónir króna svavar hávarðsson skrifar 30. desember 2014 07:15 Í hverri ferð eru 700 gámar um borð í Dettifossi fulllestuðum. fréttablaðið/gva „
Það voru einhverjir gámar sem krömdust á dekkinu við þessi læti, en tuttugu sem fóru í sjóinn. Það er hins vegar ekki vitað hvort það kom brot á skipið eða hvort álagið á skipið hafi verið svona mikið með þeim afleiðingum að gámarnir fóru útbyrðis,“ segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, um skaðann sem varð á farmi flutningaskipsins Dettifoss á leiðinni til Íslands rétt fyrir jólin. Nú er komið í ljós að 26 gámar töpuðust eða urðu fyrir skemmdum. Nú liggur fyrir að fimm lúxusjeppar af Mazda-gerð fóru í sjóinn, en flestir gámarnir innihéldu dagvöru ýmiss konar, fóður og varahluti svo dæmi sé tekið.Ólafur William HandÓlafur segir að skemmdirnar á Dettifossi séu litlar, en áætlað tjón á farmi skipsins er reiknað út frá þeirri þumalputtareglu tryggingarfélaga að hver gámur, sem telst tvær gámaeiningar, innihaldi varning að andvirði 50 þúsund Bandaríkjadollara eða 6,4 milljóna íslenskra króna. Tjónið er metið allt að 166 milljónir með þessari reiknireglu. Við þetta bætist skaði sem varð fyrr í desember þegar fjórir gámar töpuðust af Goðafossi og nálgast því 200 milljónir þegar allt er talið. „Hvert tjónið er nákvæmlega fáum við sennilega aldrei að vita, hver og einn viðskiptavinur skiptir við sitt tryggingarfélag hvað það varðar,“ segir Ólafur. Fjöldinn allur af gámum fellur frá borði á flutningaskipum ár hvert, en Ólafur segir að lítil hætta skapist þess vegna. Flestir gámarnir sökkvi strax en aðrir rifni fljótlega með sömu niðurstöðu. Hins vegar sé staðsetning þeirra strax gefin upp svo aðrir sjófarendur séu meðvitaðir um að farmur hafi tapast. „Vissum reglum er fylgt. Það er haft samband við landhelgis- eða strandgæslu þeirra landa sem næst liggja og gefin upp staðsetning á öryggistíðni skipa svo menn viti af þessu,“ segir Ólafur. Eins og komið hefur fram hefur veður og aðstæður á hafinu á milli Íslands og Evrópu verið afar slæmt síðan í nóvember. Spurður hvort Dettifoss hafi fengið á sig brot þegar gámarnir fóru í sjóinn svarar Ólafur því til að það liggi ekki fyrir nákvæmlega. „Þetta eru mikil öfl sem við er að eiga og ekki útilokað að tjónið sé af því að álagið í þessum brælusjó hafi orðið svo mikið að svona fór.“
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Sjá meira