Sveitarfélögin bíða dauða meðeigenda sinna í EBÍ Gaeðar Örn Úlfarsson skrifar 29. desember 2014 07:00 Þegar fólk sem á hlut í EBÍ deyr rennur hlutur þeirra til sveitarfélaga sem eiga í félaginu. Fréttablaðið/GVA
Bæjarráð Kópavogs telur ávöxtunarmöguleika Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands (EBÍ) svo takmarkaða að óskað var greinargerðar um möguleika þess að leysa félagið upp og greiða út eignarhluti. „Það væri ekki skynsamlegt á þessum tímapunkti,“ segir Anna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri EBÍ, sem ræður frá slitum á félaginu í bréfi til Kópavogsbæjar. Brunabótafélaginu var með lögum breytt í eignarhaldsfélag á árinu 1994. Frá þeim tíma hafa fulltrúar sveitarfélaga sem eiga hlut í félaginu farið með völdin. Samkvæmt lögunum eignast sameignarsjóðurinn hluti einstaklinga í EBÍ þegar þeir falla frá. Sömuleiðis rennur í sameignarsjóðinn hlutur félags sem hættir að vera skráð sem lögaðili. Sveitarfélögin eignast sameignarsjóðinn. Árið 1994 var hlutdeild sameignarsjóðsins 7,2 prósent. Fyrir tólf árum var skiptingin þannig að einstaklingar áttu 50 prósent í EBÍ, lögaðilar 29 prósent og sameignarsjóðurinn 21 prósent. Um síðustu áramót hafði sameignarsjóðurinn hins vegar aukist í 33,5 prósent en hlutur lögaðila minnkað í 23,4 prósent og hlutur einstaklinga var 43,1 prósent. Í svari Önnu Sigurðardóttur til Kópavogsbæjar er þannig bent á að hlutur sameignarsjóðsins vaxi í áranna rás. Eignarrétturinn sé óvirkur en verði virkur við slit félagsins. „Lykilatriðið hér er að sameignarsjóðurinn verður eign aðildarsveitarfélaganna við hugsanleg slit og því skiptir öllu máli fyrir sveitarfélögin að hlutdeild sameignarsjóðsins verði orðin umtalsverð áður en til slita á félaginu kemur,“ segir í greinargerð Önnu. Þá kemur fram að eignir EBÍ séu nú um þrír milljarðar króna. Væri félaginu slitið þyrfti það að greiða út um einn milljarð vegna lífeyrisskuldbindinga og einstaklingar og fyrirtæki myndu eiga um 1,3 milljarða. Í hlut sveitarfélaganna kæmu 670 milljónir. „Í hnotskurn má því segja að sveitarfélögin standi frammi fyrir tveimur valkostum. Annars vegar sá að fá lítið strax, það er þessar 670 milljónir, eða horfa til lengri tíma, ávaxta eignina og halda áfram ágóðahlutagreiðslum til sveitarfélaganna á meðan hlutdeild sameignarsjóðsins hækkar og lífeyrisskuldbindingin lækkar,“ undirstrikar framkvæmdastjórinn. Fram kemur að árleg útgreiðsla EBÍ til eigenda hafi verið 222 milljónir króna að meðaltali á fjórtán ára tímabili. „Þessi árangur hefur náðst þrátt fyrir að hér hafi orðið algjört hrun á fjármálamarkaði,“ segir Anna Sigurðardóttir í skýringum sínum til Kópavogsbæjar. Á meðan sveitarfélögin sem stjórna EBÍ ákveða að slíta ekki félaginu minnkar hlutur einstaklinganna eftir því sem þeir falla frá. Í dag er hlutur þeirra í hreinni eign EBÍ yfir 800 milljónir króna sem, eftir því sem tíminn líður, færast í hendur sveitarfélaganna.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Sjá meira