Innlent

Búast við mjög mikilli umferð

Lögregla mun stýra umferð um kirkjugarðana á aðfangadag.
Lögregla mun stýra umferð um kirkjugarðana á aðfangadag.
Búast má við mikilli umferð við kirkjugarða á höfuðborgarsvæðinu á aðfangadag. Lögreglan mun fylgjast sérstaklega með umferð við Fossvogskirkjugarð og Gufuneskirkjugarð og greiða fyrir umferð eins og hægt er. Bílaumferð inn í Fossvogskirkjugarð er takmörkuð á milli klukkan 9 til 15 og er aðeins heimil þeim sem framvísa svokölluðu P-merki. Ökumönnum er bent á bílastæði við Fossvogskirkju, Klettaskóla, Suðurhlíð og Vesturhlíð.

Þá verður aðkoma að Gufuneskirkjugarði eingöngu frá Hallsvegi. Starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma stýrir umferðinni inni í kirkjugarðinum og verður um eins konar hringakstur að ræða. Farið er út úr Gufuneskirkjugarði norðan megin og inn á Borgaveg. Ökumenn eru beðnir um að aka Borgaveg í vestur og þaðan um Strandveg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×