Vegagerðin hefur áður fengið athugasemdir Sveinn Arnarsson skrifar 22. desember 2014 09:45 Vegagerð við Reykjanesbraut. Stór hluti útgjalda Vegagerðarinnar er kaup á verktakavinnu. Fréttablaðið/Ernir
Vegagerðin hefur áður fengið athugasemdir um fjölda tilvika þar sem reglur um útboðsskyldu eða samþykktarferli reikninga voru ekki virtar. Þetta segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. Kastljós fjallaði ítarlega um brotalamir í útboðsmálum Vegagerðarinnar í síðustu viku. Ekkert formlegt eftirlit er með útboðsmálum hins opinbera. Ný tilskipun ESB tekur á þessum vanda og skikkar aðildarlönd og ríki innan EES að setja á stofn eftirlit með opinberum samningum. Sveinn segir eftirlit Ríkisendurskoðunar tvíþætt, annars vegar í gegnum reglubundna fjárhagsendurskoðun og hins vegar með stjórnsýsluúttektum. „Við fjárhagsendurskoðun er jafnan kannað hvort stofnanir noti rammasamninga Ríkiskaupa og hvort fjárhæðir fara yfir viðmiðunarmörk útboðsskyldu.“Sveinn Arason„Við fjárhagsendurskoðun hjá Vegagerðinni vegna ársins 2013 gerði Ríkisendurskoðun athugasemd við nokkur tilvik þar sem reglur um útboðsskyldu eða samþykktarferli reikninga voru ekki virtar,“ segir Sveinn. „Engin stofnun fer beinlínis með það hlutverk að vakta opinbera samninga þannig að farið sé að lögum um opinber innkaup við meðferð opinbers fjár,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa. „Visst aðhald er þó að finna í ákvæðum laga um opinber innkaup. Þar er kveðið á um kærunefnd útboðsmála og fjallað um gildi samninga, óvirkni, önnur viðurlög og skaðabætur. Samkvæmt þessum ákvæðum er eftirlitið í dag í höndum fyrirtækja á markaði. Þá einkum fyrirtækja sem taka þátt í útboðum. Þeim fyrirtækjum eru tryggð ákveðin úrræði með þeim, svo sem að skjóta málum sínum til kærunefndar útboðsmála. Þó má segja að hlutverk Samkeppniseftirlitsins komi að vissu leyti inn á þetta svið einnig.“ Halldór bendir á að á döfinni sé lagabreyting sem muni binda enda á þetta eftirlitsleysi. „Í nýlegum samþykktum um opinber innkaup eru sérstök ákvæði um vöktun opinberra samninga. Búast má við að tilskipanir þessar verði innleiddar í íslenska löggjöf árið 2017. Vonir standa til að það verði fyrr.“
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Innlent Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Innlent Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Almennur borgari veitti bílnum eftirför Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Tómas tjáir sig um dóminn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Lögreglan lýsir eftir Arnóri Guðmundssyni „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Sjá meira