Fáir í göngufæri við vínbúðir í Reykjavík Garðar Örn Úlfarsson skrifar 22. desember 2014 08:45 Að meðtaldri vínbúð Seltirninga á Eiðistorgi eru átta vínbúðir í göngufæri fyrir samtals 3.500 Reykvíkinga sem svarar til 2,9 prósenta af öllum borgarbúum. Mynd/Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur.
Af 120 þúsund íbúum Reykjavíkur eru aðeins 3.500 í göngufæri við vínbúð. Þetta kemur fram í umsögn umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar um tillögu sjálfstæðismanna um að borgarstjórn skori á Alþingi að samþykkja frumvarp um að áfengi megi selja í almennum verslunum. Sjálfstæðismenn segja að um sé að ræða „mikið og mikilvægt hagsmunamál“ fyrir borgarbúa. „Áfengi er hluti af neysluvöru borgarbúa og ljóst að fáar og illa staðsettar áfengisverslanir ríkisins vinna gegn markmiði aðalskipulags, að umhverfi daglegrar verslunar borgarbúa verði hverfisvæddara,“ segir meðal annars í ályktunartillögunni sem borgarstjórn vísaði til umsagnar hjá umhverfis- og skipulagssviði.Halldór Halldórsson oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn.vísir/vilhelmÍ umsögn umhverfis- og skipulagssviðs er sömuleiðis bent á markmið í aðalskipulaginu um að efla verslun og þjónustu í nærumhverfi. Óumdeilt sé að áfengi sé hluti af daglegum neysluvörum og að bætt aðgengi að þeim vörum, í formi fjölgunar staða, samræmist vel því markmiði. Vínbúðir ÁTVR séu ekki markvisst staðsettar. Í Reykjavík séu aðeins sjö vínbúðir og eru 17.300 íbúar um hverja búð. Til samanburðar eru 2.300 íbúar í baklandi vínbúðarinnar í Hveragerði. „Ekki er tekin afstaða til þess hér hvort afnema eigi einkaleyfi ríkisins á sölu áfengis en ljóst er að núverandi verslunarfyrirkomulag ÁTVR styður ekki við ofangreind markmið,“ segir umhverfis- og skipulagssviðið.Hildur Sverrisdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, á ekki von á öðru en að meirihlutinn samþykki tillögurnar.„Í Reykjavík eru aðeins sjö vínbúðir og eru 17.300 íbúar um hverja búð. Til samanburðar eru 2.300 íbúar í baklandi vínbúðarinnar í Hveragerði. Íbúar sem eru í göngufæri við þessar sjö vínbúðir, auk búðarinnar á Eiðistorgi, eru aðeins 3.500,“ segir í umsögninni. Þar er göngufæri skilgreint sem fjögur hundruð metra fjarlægð. „Til samanburðar eru yfir 50 þúsund Reykvíkingar í göngufæri við matvörubúð með neysluvarning í öllum helstu vöruflokkum sem þó getur ekki talist ásættanlegt hlutfall.“ Hið pólitískt skipaða umhverfis- og skipulagsráð samþykkti síðan á miðvikudag umsögn embættismanna sviðsins. Fulltrúi Vinstri grænna sat hjá. Málið fer nú aftur til afgreiðslu hjá borgarstjórn.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Sjá meira