Andleg heilsa barna getur liðið fyrir tímaskort og fátækt Óli Kristján Ármannson skrifar 20. desember 2014 08:30 Í rannsókn sem gerð er í tengslum við doktorsritgerð við Gautaborgarháskóla kemur fram að hér er fátækt foreldra ólíklegri til að hafa áhrif á andlega líðan barna en annars staðar á Norðurlöndum. vísir/daníel
Fjárhagsáhyggjur foreldra barna og ungmenna eru hvergi meiri á Norðurlöndum en hér á landi. Um leið eru neikvæð áhrif bágs fjárhags hvergi minni á andlega líðan barna. Þetta er meðal þess sem lesa má út úr nýrri rannsókn Hrafnhildar Rósar Gunnarsdóttur hjúkrunarfræðings, en hún varði doktorsritgerð sína við heilbrigðisvísindadeild Gautaborgarháskóla í gær, 19. desember. Í samantekt ritgerðar sinnar segir Hrafnhildur andlega vanlíðan mikilvægt lýðheilsuvandamál sem áhrif hafi á verulegan hluta norrænna barna og unglinga. „Lífsskilyrði og lifnaðarhættir foreldra eru mikilvægir áhrifaþættir heilsu og vellíðanar barna og unglinga en fáar rannsóknir hafa verið gerðar á sambandi daglegra áskorana foreldra og andlegrar heilsu barna. Tilgangur rannsóknarinnar var þess vegna að kanna upplifun foreldra af áskorunum hversdagslífsins og rannsaka nánar tengsl andlegrar vanlíðanar barna og unglinga við tímaskort og fjárhagserfiðleika foreldra.“Hrafnhildur Rós GunnarsdóttirTekin voru viðtöl við 25 foreldra þriggja til fimm ára barna, auk þess sem spurningalisti var árið 2011 sendur til handahófsúrtaks foreldra 3.000 tveggja til sautján ára barna frá hverju Norðurlandanna fimm, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Svör bárust frá 7.805 foreldrum. Hrafnhildur segir að í viðtölunum hafi foreldrar lýst hversdagslífi sem einkenndist af miklum kröfum og væntingum ásamt því að lýsa tímaskorti sem þýðingarmikilli áskorun. „Niðurstöður spurningalistakönnunarinnar sýndu að 14,2 prósent mæðra og 11,6 prósent feðra upplifðu tímaskort í miklum mæli. Marktækt samband fannst á milli andlegrar vanlíðanar bæði drengja og stúlkna og tímaskorts foreldra.“ Þá hafi hátt í helmingur íslenskra foreldra greint frá fjárhagserfiðleikum sem sé talsvert hærra hlutfall en á meðal foreldra á hinum Norðurlöndunum. „Marktækt samband á milli fjárhagserfiðleika foreldra og andlegrar vanlíðanar barna og unglinga fannst meðal þátttakenda í öllum löndunum, nema á Íslandi en þar var sambandið bæði marktækt veikara og ekki tölfræðilega marktækt.“Í kynningu Gautaborgarháskóla á rannsókn Hrafnhildar kemur fram í máli hennar varðandi skort á marktæku sambandi við fátækt hér að ástæðunnar kunni að vera að leita í fjölda þeirra barna sem deili svipuðum aðstæðum. Vegna þess hve margir líða einhvern skort þá fylgi því ekki sömu neikvæðu tengingar eða vanlíðan. „Á hinum Norðurlöndunum býr allur fjöldinn við góðar efnahagsaðstæður þannig að aðstæður þeirra sem líða skort verða augljósari. Svo er mikilvægt að halda því til haga að íslensk börn glíma í minni mæli við andleg veikindi en börn í öðrum löndum og ekki hægt að tengja þau með jafnsterkum hætti við fjárhagsörðugleika foreldranna.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Fleiri fréttir Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Sjá meira