Kaupa jákvæða umjöllun í sjónvarpsþáttum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. desember 2014 07:00 Selfoss er stærsti verslunarstaður Suðurlands og gæti orðið til umfjöllunar hjá N4 ef sveitarfélagið Árborg greiðir sjónvarpsstöðinni uppsett verð. Féttablaðið/HAG
Sveitarfélögum á Suðurlandi stendur nú til boða að kaupa sig inn í þáttaröð þar sem sjónvarpsstöðin N4 ætlar að fjalla um sveitarfélögin á jákvæðan hátt. „N4 leggur áherslu á dagskrárgerð fremur en beinskeyttar fréttir. Við teljum að með því að fjalla heiðarlega um samfélagið, þá bætum við ímynd og sjálfsmynd svæðanna sem fjallað er um,“ segir í bréfi sem María Björk Ingvadóttir sendi fyrir hönd N4 til bæjaryfirvalda í Ölfusi. Þáttaröðin hefur fengið heitið „Að sunnan“. N4 stefnir að því að öll fimmtán sveitarfélögin á Suðurlandi verði með og að gerðir verði 24 hálftíma þættir. N4 er nú þegar með svipaða þætti frá Norðurlandi og Austurlandi. Það er þættirnir „Að norðan“ og „Glettur“. Markmið þáttanna segir María Björk í bréfinu meðal annars vera að „stuðla að aukinni og jákvæðri umfjöllun um atvinnulíf og mannlíf á svæðinu“ og „styðja við aukin umsvif hjá þeim sem bjóða vöru og þjónustu á svæðinu“. Sömuleiðis að „stuðla að jákvæðri ímyndarsköpun og sjálfsmynd íbúa gagnvart Suðurlandi“. Fram kemur hjá Maríu Björk að Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi ætli að tryggja aðstöðu fyrir þáttargerðarfólk í Frumkvöðlasetri samtakanna. Fjögur sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu hafi þegar ákveðið að vera með og ætli að leggja að lágmarki hálfa milljón króna hvert í þættina „og tryggja þannig umfjöllun um uppsveitirnar í þáttunum“. Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að semja við N4. Auk þess að greiða sjónvarpsstöðinni hálfa milljón króna skuldbindur sveitarfélagið sig til þess að „vera verktökum á vegum N4 sem annast þáttagerðina innanhandar með upplýsingaöflun og tillögur að efni og tilnefnir tvo til þrjá bakhjarla til þess“, eins og segir í bréf N4. „Þá er ekkert því til fyrirstöðu að einstaka sveitarfélög geti gert viðbótarsamning um enn frekari umfjöllun.“ Að sögn Maríu Bjarkar dugar framlag sveitarfélaganna ekki fyrir öllum kostnaði. Ætlunin sé að sækja í Vaxtarsamning Suðurlands, sem fær framlög úr ríkissjóði, og kanna áhuga fyrirtækja, stofnana og félaga á Suðurlandi á að leggja fram peninga. „Einnig verður leitað í aðra sjóði, til dæmis menningarsjóði enda er hér um menningarverðmæti að ræða.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira