Góður samningur fyrir Þingeyri og Flateyri Haraldur Guðmundsson skrifar 29. nóvember 2014 07:45 „
Við fögnum þessari niðurstöðu og þessari samfélagslegu ábyrgð sem fyrirtæki eru að sýna þarna þrátt fyrir að þetta séu keppinautar í viðskiptum með fiskinn,“ segir Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga. Fyrirtækin Arctic Oddi ehf., Valþjófur ehf. og Vísir hf. komust á fimmtudag að samkomulagi sem á að styrkja stoðir atvinnulífsins á Flateyri og Þingeyri. Samkomulagið felur í sér að Arctic Oddi mun flytja fiskvinnslu sína frá Flateyri í húsnæði á Þingeyri sem var áður í eigu Vísis. Við það skapast 15 störf við vinnslu og pökkun á eldisfiski og frekari uppbyggingu á fiskeldi fyrirtækisins. Fiskvinnslufyrirtækið Valþjófur tekur við fasteignum og tækjum Arctic Odda á Flateyri og gerir ráð fyrir að skapa um 20 ársstörf. Aðkomu Vísis að útgerð og vinnslu á Þingeyri lýkur með samkomulaginu en það er gert með fyrirvara um samþykki Byggðastofnunar.Finnbogi SveinbjörnssonMynd/aðsend„Vissulega verða þetta færri störf til að byrja með en þetta er auðvitað töluvert meiri vinnsla en stefndi í því við vorum farin að gera ráð fyrir að fiskvinnsla myndi nánast leggjast af á báðum stöðum,“ segir Finnbogi og heldur áfram. „Þetta byggir að stóru leyti á því að Byggðastofnun sýni samstarfsvilja varðandi sérstakan byggðakvóta þannig að fyrirtækinu Valþjófi verði gert kleift að blómstra á Flateyri. Þetta eru heimamenn sem hafa sterkar rætur á Vestfjörðum og ætla sér að halda áfram að byggja upp.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira