Vinnslustöðin bauð sjómönnum samráð Sveinn Arnarsson skrifar 26. nóvember 2014 07:00 Bauð Sjómannasambandinu að skoða öll sín gögn. Sjómannasambandið mætti ekki til Eyja. vísir/Hari
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, furðar sig á því að forystumenn Sjómannasambands Íslands ákváðu að taka ekki þátt í að reikna hlut sjómanna sem hlutfall af söluverði afurðar. Reynt var að byggja á samvinnu við Sjómannasambandið án árangurs. „Við höfðum verið í allmörg ár með fyrirkomulag þar sem fiskverð til uppsjávarskipa var hlutfall af söluverði afurðar. Þar var allt uppi á borðum og fulltrúar sjómanna og forsvarsmenn þeirra gátu komið hvenær sem var og skoðað sölur og sannreynt útreikninga okkar. Forystumönnum sjómanna var boðið að koma, en þeir mættu aldrei. Í tvígang skoðaði Verðlagsstofa skiptaverðs útreikninga okkar og fann að allt var gert rétt,” segir Sigurgeir Brynjar.Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, segir rétt að þeim hafi boðist að koma og skoða gögn. „Við fórum ekki til Vestmannaeyja, það er alveg rétt. Við áttum með þeim fund hins vegar á skrifstofum LÍÚ einu sinni. Hins vegar var aldrei á hreinu hversu djúpt við mættum kafa í bókhaldið og því ákváðum við að taka ekki þessu tilboði þeirra.“Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson framkvæmdastjóri SVSFréttablaðið sagði frá því í gær að úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hafi úrskurðað að verð sem Vinnslustöðin greiddi fyrir síld til tveggja skipa sinna hafi verið of lágt. Skipin sem um ræðir er Kap VE 5 og Sighvatur Bjarnason VE 81. Telur Sigurgeir Brynjar úrskurðinn illa rökstuddan og vill fá ítarlegri svör frá úrskurðarnefndinni. Einnig bendir hann á að í haust hafi Vinnslustöðinni verið vísað til úrskurðarnefndar af hálfu sjómannaforystunnar en var vísað frá dómi. Hann telur Verðlagsstofu skiptaverðs ekki sjá málin í réttu samhengi. „Þegar kaupendur kaupa bestu síldina, sem er norsk-íslensk síld, kaupa þeir hana á hæsta verðinu. Íslensk síld er ekki eins góð, hún hefur ekki sama fituinnihald, ekki sama þéttleika holds og nýtist ekki með sama hætti. Nefndin er eina stofnunin í heiminum sem er þeirrar skoðunar að íslensk síld sé verðmætari en norsk-íslensk síld, án rökstuðnings,” segir Sigurgeir Brynjar.
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira