Vinnslustöðin borgar einnig of lágt verð Sveinn Arnarsson skrifar 25. nóvember 2014 07:00 Verðlagsstofa skiptaverðs skaut máli sínu til úrskurðarnefndar. Vinnslustöðin þarf að greiða hærra verð fyrir síld til sjómanna sinna. Fréttablaðið/Óskar
Vinnslustöðinni hefur verið gert skylt að greiða ákveðið verð fyrir síld upp úr sjó og til bræðslu samkvæmt úrskurði Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Útgerðin greiddi of lágt verð fyrir afla og hlunnfór þannig sjómenn sína að mati formanns Sjómannasambandsins. Úrskurðurinn er í meginatriðum sá sami og úrskurður gegn Skinney-Þinganesi sem Fréttablaðið greindi frá í gær. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum er meðal öflugustu sjávarútvegsfyrirtækja landsins og rekur bæði útgerð og fiskvinnslu. Vinnslustöðin gerir út níu skip og er með um 250 fastráðna starfsmenn í vinnu.Sigurgeir B. KristgeirssonFyrirtækið kaupir afla fiskiskipa til fiskvinnslunnar á ákveðnu verði. Þannig kaupir fyrirtækið af sjálfu sér aflann sem kemur að landi. Þetta verð ákvarðar síðan laun sjómanna þar sem laun þeirra eru einvörðungu ákvörðuð af verðmæti þess afla sem kemur að landi. Í gögnum verðlagsstofu skiptaverðs kemur fram að útgerðin greiddi 35 krónur vegna síldar til bræðslu og 41,8 krónur vegna síldar til vinnslu. Það verð fannst Verðlagsstofu skiptaverðs of lágt og skaut málinu til úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Úrskurðarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að verðið væri sannarlega lægra en gengur og gerist. Úrskurðaði nefndin að verð á síld upp úr sjó ætti að vera 48,5 krónur og 39 krónur til bræðslu. Þessi munur á verði veldur því að sjómenn fengu lægra kaup. Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, segir þennan dóm í öllum meginatriðum eins og þann sem Fréttablaðið fjallaði um í gær, gegn Skinney-Þinganesi. „Þetta eru mjög líkir úrskurðir þar sem borgað er lægra verð fyrir aflann og þannig fá sjómennirnir minna í sinn hlut og lægri laun. Verðlagsstofa skiptaverðs er að þessu leytinu að sinna vinnu sinni vel og sýnir að það er þörf á henni í því skipulagi veiða sem er við lýði í dag.“ Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, er ekki sammála úrskurði nefndarinnar og telur rökstuðningi ábótavant. „Við erum að viða að okkur gögnum í þessu máli, lesa úrskurðinn og erum að kanna málið. Að okkar mati teljum við úrskurðinn ekki á rökum reistur. Okkur finnst vanta rökstuðning við hann.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira