Innlent

Fékk ekki að nota glærur

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Kjartan Magnússon fékk ekki að nota glærur á borgarstjórnarfundi þrátt fyrir að annar fundarmaður hefði gert það stuttu áður.
Kjartan Magnússon fékk ekki að nota glærur á borgarstjórnarfundi þrátt fyrir að annar fundarmaður hefði gert það stuttu áður. Fréttablaðið/Vilhelm
Kjartan Magnússon borgarfulltrúi fékk ekki að nota glærur á fundi borgarstjórnar í fyrradag. Til umræðu voru bætt göngutengsl barna og ungmenna yfir Hringbraut.

Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, sagði að gögn sem sýna ætti á glærum þyrftu að berast forsætisnefnd fyrir fund og þótti ekki við hæfi að gera hlé til að framkvæma „skyndihugdettu“. Kjartan lýsti yfir vonbrigðum sínum með forsetann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×