Tónlist

Quarashi gefur út fyrsta lagið í áratug

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Quarashi kemur saman á einum tónleikum á Þjóðhátíð í Eyjum.
Quarashi kemur saman á einum tónleikum á Þjóðhátíð í Eyjum.
„Lagið heitir Rock On og inniheldur vísanir í upphafsár Quarashi,“ segir Sölvi Blöndal, meðlimur hljómsveitarinnar Quarashi sem á fimmtudag gefur út sitt fyrsta nýja lag í tíu ár. Quarashi er ein vinsælasta hljómsveit Íslandssögunnar en hún var stofnuð árið 1996 og starfaði til ársins 2005. Síðasta platan sem sveitin gaf út er Guerilla Disco en hún kom út árið 2004.

Rock On kemur út á Spotify og Youtube og er hluti af stærri útgáfu sem sveitin stefnir á seinna á þessu ári.

„Til að ná upprunalega sándinu voru grafnar upp upptökugræjur sem voru í notkun í byrjun tíunda áratugarins auk annarra hjálpartækja sem þóttu ómissandi við upptökur á tónlist Quarashi á þessum tíma. Við reyndum að endurskapa stemninguna árið 1996,“ bætir Sölvi við.

Quarashi kemur saman aftur á einum tónleikum á þessu ári, í Herjólfsdal á Þjóðhátíð í Eyjum um verslunarmannahelgina. Þá stíga allir upprunalegu meðlimirnir á svið; Höskuldur Ólafsson, Steinar Fjeldsted og Ómar „Swarez“ Hauksson. Auk þess verður Egill „Tiny“ Thorarensen með bandinu en hann kom í stað Höskuldar þegar hann yfirgaf sveitina árið 2002.

Nutu gríðarlegra vinsælda um heim allan

* Quarashi seldi um 400.000 plötur á heimsvísu á ferlinum

* Sveitin hefur unnið með heimsþekktum listamönnum eins og Cypress Hill, Eminem, Weezer og Prodigy

* Allar breiðskífur sveitarinnar fóru í gullsölu á Íslandi


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×