Árni í stjórn nýs risafélags 14. janúar 2014 11:00 Árni hefur verið skipaður í nýtt félag. Fréttablaðið/pjetur
Árni Samúelsson, eigandi og stjórnarformaður Sam-Félagsins, sem er móðurfélag Sambíóanna og Samfilm, hefur verið skipaður í stjórn nýs félags sem til verður eftir samruna Cineworld Group og Cinema City Intl. Samruninn sem er 96,3 milljarða íslenskra króna virði mun taka gildi í byrjun mars 2014. Hann mun geta af sér aðra stærstu kvikmyndahúsakeðju í Evrópu með 1.852 sýningarsali í tíu löndum, en um 250 milljón manns búa á markaðssvæðum félagsins. Cinema City sem skráð er í kauphöll í Varsjá í Póllandi er leiðandi félag á kvikmyndahúsamarkaðnum í Evrópu og rekur kvikmyndahús víða í Evrópu. Cineworld Group er skráð í kauphöll London og rekur kvikmyndahús undir nöfnunum Cineworld og Picturehouse og er markaðsleiðandi kvikmyndahúsakeðja í Bretlandi, Írlandi og rekur einnig kvikmyndahús í Skotlandi.
Mest lesið Hver er maðurinn? Lífið Tískan vopnið í keppni gegn krabbameini Tíska og hönnun Þriggja daga leikhús fáránleikans Lífið Tók með sér leynihráefnið, Camembert-brennivín Lífið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Laufey „splittaði G-inu“ á tónleikum í Dublin Lífið Krakkatía vikunnar: Hundar, kettir og eldingar Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Salurinn fylltist í þrígang á fimmtíu ára afmælistónleikum Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið Fleiri fréttir Bruce Campbell með ólæknandi krabbamein Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Sverja af sér samsæriskenningar um klónaðan Carrey Tækifærin þurrkuðust upp eftir stuðning við Palestínu Síðasti þáttur Nágranna í loftið á Sýn og aðdáandi syrgir Báðust afsökunar á niðrandi hljóðkækjum Borðtennisspaðar fóru tómhentir af BAFTA-hátíðinni Gyða semur tónlist fyrir kvikmynd Bad Bunny Hryllilega góð stemming á frumsýningu Röskunar Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur Nicolas Cage dularfullur köngulóarspæjari Múmían rís í fjórða sinn Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið Meryl Streep verður Joni Mitchell Sjá meira