Útgerðin gerði rangt upp við sjómennina Sveinn Arnarsson skrifar 24. nóvember 2014 07:00 Ásgrímur Halldórsson SF-250 Sjómenn fyrirtækisins urðu af tekjum að mati framkvæmdastjóra Sjómannasambandsins. Fréttablaðið/Anton
Skinney-Þinganesi hefur verið gert skylt að greiða ákveðið verð fyrir síld upp úr sjó og til bræðslu samkvæmt úrskurði Úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Útgerðin greiddi of lágt verð fyrir afla og hlunnfór þannig sjómenn sína að mati formanns Sjómannasambandsins. Samkvæmt úrskurði nefndarinnar frá 27. október síðastliðnum skaut Verðlagsstofa skiptaverðs málinu, sem til er komið vegna verðlagningar Skinneyjar-Þinganess á síld hjá áhöfnum Jónu Eðvalds SF200 og Ásgríms Halldórssonar SF250, til úrskurðarnefndar. Bæði skipin stunda uppsjávarveiðar á síld, loðnu og makríl. Aðalsteinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess, telur úrskurðinn ósanngjarnan. „Mitt mat er að úrskurður nefndarinnar sé ekki réttur en við munum að sjálfsögðu hlíta honum. Meira hef ég ekki að segja um þennan úrskurð,“ segir hann. Aðalsteinn gefur lítið fyrir að sjómenn hafi verið hlunnfarnir. „Við erum bara að borga eftir samningum sem eru í gildi og erum ekki að svína á einum né neinum.“ Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, segir þessa málavöxtu þekkta. „Samkvæmt kjarasamningi eiga útgerðarmenn og sjómenn að gera samning sín á milli. Það sem gerist í þessari verðmyndun á afla er að útgerðirnar kaupa afla af sjálfum sér og laun til sjómanna ákvarðast af virði aflans,“ segir hann. Verðið sem Skinney-Þinganes greiddi fyrir aflann var 39,4 krónur á kílóið til vinnslu og 35,4 krónur til bræðslu, samkvæmt gögnum frá verðlagsstofunni. Niðurstaða úrskurðarnefndarinnar var að hækka verðið til vinnslu upp í 50 krónur á kíló og í 38 krónur til bræðslu. „Verðlagsstofa skiptaverðs á að fylgjast með samningum sem þessum. Þar segir í lögum að ef vikið verði verulega frá því sem eðlilegt getur talist, geti verðlagsstofan skotið máli til úrskurðarnefndar. Verðlagsstofa var þannig sett á laggirnar eftir verkfall sjómanna 1998 til að hafa eftirlit með að ekki sé svínað á sjómönnum. Það er ljóst að þarna hafa sjómenn verið hlunnfarnir um einhverjar upphæðir,“ segir Hólmgeir. Ákvörðun úrskurðarnefndar gildir til aðfangadags jóla frá og með 24. október síðastliðnum.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira