Norðurlandameistarar í klamydíusmitum: „Við eigum að geta gert betur“ Bjarki Ármannsson skrifar 12. október 2014 14:39 Rannveig Pálsdóttir, húð- og kynsjúkdómalæknir, segir litla noktun smokka meðal íslenskra ungmenna vandamál. Vísir/Getty/Getty „
Við erum allavega Norðurlandameistarar, svo mikið veit ég,“ segir Rannveig Pálsdóttir, húð- og kynsjúkdómalæknir, um tíðni klamydíusmita meðal ungra Íslendinga. Rannveig ræddi málin í sjónvarpsþættinum Hæpið á RÚV á miðvikudag.Í fyrra greindi yfirlæknir á húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans frá því að Íslendingar greinist oftast Evrópuþjóða með klamydíu miðað við höfðatölu, en Rannveig segir erfitt að taka slíkar upplýsingar saman. „Vandamálið er það að það er alltaf reiknað hversu margir taka próf,“ útskýrir Rannveig. „Það koma fleiri í skoðun hérlendis en í sumum öðrum löndum, en ég held að það sé ekki endilega meira en á Norðurlöndunum. Það er jákvætt, og nú er auðvitað hægt að gera þetta í þvagprufu. Ég vorkenni engum að þurfa að koma að pissa, ég vorkenndi þeim stundum í gamla daga þegar maður þurfti að stinga pinnum upp í þvagrásina hjá strákum, en nú vorkenni ég engum.“ Rannveig segir vandamálið snúast fyrst og fremst um litla notkun smokka hjá ungum Íslendingum. „Fólk hugsar bara ekki fyrr en eftir á,“ segir hún. „Fólk veit þetta alveg, en það er einhvern veginn eins og það sé eitthvað mál að nota smokka. Það á ekki að vera eins gott og stelpur segja stundum við mig, þá er þetta bara búið fyrr. Svo eru þær auðvitað á pillunni, þannig fólk er ekki hrætt við getnað lengur. Það auðvitað breytti mjög miklu.“ Hún segir að í jafn litlu samfélagi og á Íslandi ætti að vera lítið mál að rekja fyrrum rekkjunauta og því ættum við að standa mun betur að vígi en við gerum. „Þetta á að vera miklu auðveldara hér,“ segir Rannveig. „Svo eru lyfin ókeypis, þannig að þetta þarf ekki að vera svona. Við eigum að geta gert betur.“Völdum ekki nógu gott bóluefni Aðspurð hvernig Íslendingar standa varðandi aðra kynsjúkdóma nefnir Rannveig að lítið sé um lekanda og sárasótt hér á landi, þó örlítið aukning hafi verið í seinni flokknum undanfarið. „En svo höfum við verið svolítið há í kynfæravörtunum,“ segir Rannveig. Hún telur það sérstaklega slæmt í ljósi þess að kynfæravörtur taki ekki einungis lengri tíma að lækna, heldur búi upplifunin með fólki mörg ár á eftir. „Mér finnst það vera svolítil synd að við völdum á sínum tíma ekki eins breytt bólefni, vorum frekar að hugsa um leghálsinn frekar en kynfæravörturnar. Það er til tvenns konar bóluefni, annars vegar fjórgilt sem tekur frekar vörturnar. Það var notað í Ástralíu og þar smitast nánast enginn á aldrinum sextán til tuttugu ára.“
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira