Vill aðstoða konur að upplifa góða fæðingu Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 20. nóvember 2014 09:30 Kristín, ásamt systur sinni Áslaugu, en þær eiga saman skartgripafyrirtækið Twin Within Vísir „
Ég hef haft áhuga á þessum fræðum lengi, þar sem móðir og barn eru í forgangi í fæðingunni,“ segir Kristín Maríella Friðjónsdóttir, hönnuður og eigandi skartgripamerkisins Twin Within – Creative Jewelry og doula. Hún lét drauminn rætast og fór á DONA International Doulu-námskeið í Singapúr, þar sem hún býr ásamt manninum sínum og ellefu mánaða dóttur. „Eftir fæðingu dóttur minnar var ég svo hugfangin, ég átti yndislega náttúrulega fæðingu í vatni og fékk löngun til þess að fræða og leggja mitt af mörkum svo að konur fái sem mest út úr fæðingunni sinni og upplifi á eins góðan hátt og mögulegt er,“ segir Kristín. Á öðrum degi fengu þær sem sóttu námskeiðið að vera viðstaddar heimafæðingu í gegnum kennarann þeirra, en viðskiptavinur hennar fór af stað í fæðingu. „Þetta var alveg magnað. Hún var búin að segja okkur að það væri næstum útilokað, þar sem heimafæðingar eru sjaldgæfar í Singapúr,“ segir Kristín. Hún segir upplifunina hafa verið ómetanlega og að fæðingin hafi gengið eins og í sögu. „Ofan á allt þá fæddist barnið í belgnum, sem er enn sjaldgæfara. Þetta var bara dásamlegt. Við stóðum þarna fjórar úti í horni, fylgdumst með og grétum.“ Kristín segir að rannsóknir hafi sýnt fram á að þeim konum, sem hafa stuðning annarra kvenna í fæðingu, líði betur og fæðingarupplifunin sé betri. „Þessar steríótýpísku hugmyndir um að fæðingar séu hrikalega sársaukafullar og hræðilegar eru skilaboð sem maður fær ómeðvitað úr samfélaginu. Mér finnst sorglegt ef konur sem kvíða fæðingunni gefa sér ekki tíma til að undirbúa sig eða átta sig ekki á hvaða aðstoð þær geta fengið. Fyrir mér þarf að eyða þeim hugsunarhætti að það þurfi að bjarga börnum úr líkama móðurinnar sem virðist því miður enn vera algengt viðhorf á sjúkrahúsum,“ segir hún. Fyrir henni er þetta femínískt viðhorf líka. Þegar fæðingin var flutt inn á spítala í byrjun 20. aldarinnar hafi konur orðið að viðfangsefni og ekki með mikla rödd í fæðingarferlinu. „Mig langar að vera partur af þessari hreyfingu þar sem konur ganga fyrir í þessu náttúrulega ferli og fyrir mig sem femínista þá snertir þessi boðskapur mig djúpt,“ segir hún.
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira