Starfsfólki sagt upp lækki fjárframlög Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 27. nóvember 2014 09:00 Flest skattaskjólsmál virðast fara í gegnum Lúxemborg. Skattrannsóknarstjóri gerir ráð fyrir að vinna starfshóps á vegum fjármálaráðuneytisins skili niðurstöðum varðandi kaup á leynigögnum. NORDICPHOTOS/GETTY
Verði ekki breytingar á fjárheimildum til embættis skattrannsóknarstjóra á næsta ári blasir við að segja þurfi upp starfsmönnum nú í desember. Þetta segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. „Það liggur fyrir að fjárframlögin eigi að lækka um tæplega 40 milljónir króna. Mér sýnist að þá þurfi að fækka um fimm til sex starfsmenn en hér starfa alls 29. Ég er búin að fara á fund fjárlaganefndar. Málið er ekki útkljáð en mér heyrist að það eigi ekki að breyta þessu,“ greinir Bryndís frá. Spurð hvort fækkun starfsfólks hafi áhrif á vinnslu gagna úr skattaskjólum verði tekin ákvörðun um kaup á þeim segir Bryndís að ekki sé ljóst á hvaða verkefnum fækkunin kæmi niður. „En maður hefur náttúrlega áhyggjur af því hvernig vinna á úr þeim gögnum sem við fáum.“ Skattrannsóknarstjóri sendi í haust fjármálaráðuneytinu greinargerð eftir að hafa farið yfir sýnishorn af gögnum um hundruð Íslendinga sem honum voru boðin til kaups. Sýnishornin bentu til að skattaundanskot hefðu verið stunduð.Bryndís Kristjánsdóttir„Ég ætla að hlutverk starfshóps sem fjármálaráðherra hefur sett á laggirnar vegna þessara mála sé tvíþætt. Annars vegar að skoða hvort lagalegar hindranir séu á kaupum á þessum gögnum og hins vegar að meta hvort veita eigi sakaruppgjöf vegna skattaundanskota,“ segir Bryndís. Hún tekur það fram að sakaruppgjöf í nágrannalöndum og þeim löndum sem Íslendingar vilji bera sig saman við hafi skilað góðum árangri. „Menn fá upp á yfirborðið tekjur og eignir sem eru duldar gegn því að refsingar falli niður eða verði með einhverjum hætti lægri en ella. Það er hins vegar umdeilt hvort veita eigi einhverjum sakaruppgjöf sem aðrir fá ekki. Það eru ýmis sjónarmið uppi um þessi mál.“ Að sögn Bryndísar er það starfshóps fjármálaráðherra að setja reglur um þessi mál. „Það er ýmislegt sem þarf að horfa til. Þetta er yfirleitt þannig að menn hafa ákveðinn tíma til að telja fram auk þess sem engu má halda undan. Mál mega heldur ekki vera farin í gang nú þegar.“ Bryndís kveðst gera ráð fyrir að vinna starfshópsins skili niðurstöðum varðandi kaup á leynigögnum.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira