Fimm ára fangelsisdómur staðfestur: Stakk mann rétt fyrir ofan hjartastað 27. nóvember 2014 16:47 Maðurinn játaði verknaðinn. Vísir/getty
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir rétt rúmlega tvítugum karlmanni sem mun afplána fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn, sem heitir Leon Baptiste, játaði að hafa stungið annan mann en bar fyrir sig minnisleysi um nákvæma þætti málsins og vildi meina að þetta hefði ekki verið tilraun til manndráps. Hann var dæmdur til þess að greiða fórnarlambinu milljón krónur með vöxtum og var auk þess dæmdur til að greiða áfrýjunarkostnað upp á tæplega 680 þúsund krónur. Hnífsstungan átti sér stað heima hjá systur Leons og var maðurinn sem var stunginn gestur þar, ásamt kærustu sinni. Leon viðurkenndi fyrir héraðsdómi að hafa neytt eiturlyfja kvöldið sem hnífsstungan átti sér stað og telur geðlæknir að hann hafi þjáðst af aðsóknarkennd vegna neyslunnar. Þó kom fram í dómsorði að geðlæknir taldi Leon sakhæfan.„Hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum“ Samkvæmt vottorði sérfræðings í bráðalækningum, sem notað var fyrir dómi, munaði eingöngu örfáum sentímetrum að stungan hefði lent í hjarta mannsins. Hann var með stunguáverka á brjósti, um 1,5 sentímetra langan og 6 sentímetra vinstra megin við miðlínu, beint yfir hjartastað. Við þreifingu fannst loftbrjóst, sem getur verið hættulegt ástand. Í vottorðinu segir að aðeins hafi munað örfáum sentímetrum að hnífslagið hefði náð til hjartans „og þá hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum.“ Í dómsorði héraðsdóms er einnig sagt frá vitnisburði geðlæknis í málinu. Geðlæknir framkvæmdi geðrannsókn á hinum ákærða sem var lögð fyrir dóm. Í skýrslu kemur fram að hegðun Leons megi rekja til eiturlyfjanotkunar. Læknirinn telur að Leon hafi þjáðst af aðsóknarkennd, en hana hafi mátt rekja til eiturlyfjanotkunar. Nokkrir dagar voru á milli viðtala læknisins við Leon og merkti geðlæknirinn mun á fasi Leons eftir því sem á leið og var Leon orðinn „alveg eðlilegur“ nokkrum dögum eftir fyrsta viðtalið, eins og kemur fram í dómsorði. Því taldist hann vera saknæmur.Viðurkenndi stunguna Leon viðurkenndi við þingfestingu í málinu á sínum tíma að hafa stungið manninn, en taldi sig ekki hafa ætlað að myrða hann. Fyrir dómi viðurkenndi hann að hafa neytt kannabisefna, tekið svokallaðar rívó-pillur auk þess að hafa tekið inn amfetamín. Hann sagði neysluna ekki hafa verið stöðuga en „eitthvað inn á milli“ í um tvær vikur. Leon segir að hann hafi hitt manninn, sem hann kannaðist við, heima hjá systur sinni. Maðurinn hafi „verið á iði“ og verið æstur. Leon sagði frá því að maðurinn hafi hvolft úr poka sínum á borð eftir að hann kom. Þá segist Leon hafa beðið manninn um að yfirgefa íbúðina. Í dómsorði er vitnað í vitnisburð Leons og þar segir: „Hann segist ekki hafa ætlað sér að meiða manninn eða drepa hann, enda hefðu þeir ekki átt í neinum útistöðum. Geti hann ekki skýrt af hverju hann gerði þetta.“„Tala út frá sér“ Þar kemur einnig fram að Leon segist „ekkert svo“ muna að hafa stungið manninn og geti ekki munað til þess að hafa sótt hnífinn. Eftir að hafa stungið manninn hafi allt farið í uppnám og kveðst Leon hafa beðið hinn stungna afsökunar. Leon segist hafa verið „raunveruleikafirrtur“ og hrærst í „einhverjum draumaheimi“. Leon lýsti því að honum hafi fundist að aðrir væru að „tala út frá“ sér. Hann útskýrði það þannig að honum hafi þótt maðurinn hafa sagt eitthvað sem Leon hafi verið að hugsa. Hafi honum þótt stafa ógn af þessu.Engin læti Maðurinn sem var stunginn, kærasta hans og systir hins ákærða báru öll vitni í málinu. Ekkert þeirra kannaðist við nein læti fyrir hnífsstunguna og virðist hún hafa komið eins og þruma úr heiðskýru lofti. Maðurinn sem var stunginn segir frá því að hann hafi ekki orðið var við hnífinn fyrr en búið var að stinga hann. Í dómsorði segir: „Allt hafi farið í uppnám og kærasta hans tekið hnífinn og fleygt honum eitthvað frá. Ákærði hafi þó látið eins og ekkert hefði gerst og verið mjög rólegur. Hann segir ákærða hafa hjálpað sér á fætur og sagt: „Þetta er allt í lagi“. Eftir dálitla stund hafi hann fundið fyrir öndunarerfiðleikum og þá verið hringt í sjúkrabíl. Hann segist ekki hafa verið með neinn ófrið þarna áður í íbúðinni og ekki verið beðinn að fara þaðan.“ Systir hins ákærða segist hafa talað við hann fyrr um kvöldið sem verknaðurinn gerðist. Hún segist hafa fundið fyrir því að honum hafi ekki liðið vel. Hann hafi viljað hitta hana og hafi hann komið heim til hennar. Hún segir manninn sem var stunginn og kærustu hans hafa verið á förum þegar Leon kom til hennar. Hún segist ekki hafa séð hnífsstunguna en í vitnisburði hennar kemur fram að ekki komi aðrir til greina að hafa stungið manninn, annar en bróðir hennar. Hún segir að engin læti hafi verið í íbúðinni áður en hnífsstungan hafi átt sér stað.Fimm ára fangelsi Í niðurstöðu dómsins segir að sannað sé með játningu ákærða, sem studd er framburði vitnanna á vettvangi, svo og staðfestu læknisvottorði í málinu að Leon hafi veist að manninum með hnífi og stungið hann á hol í brjóstið, beint í hjartastað. „Verður að telja að hending hafi ráðið því að hnífurinn gekk ekki inn í hjartað. Jafnframt hlaut ákærða að vera ljóst að langlíklegast væri að maðurinn dæi haf hnífsstungi í þennan stað.“ Við ákvörðun refsingar var tekið fram að Leon hafi játað verknaðinn greiðlega. Hæfileg refsing hafi því verið fimm ára fangelsi, en frá þeirri vist dragast þeir dagar sem hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Hann hefur verið í fangelsi síðan í mars.
Mest lesið Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Samfélagið í áfalli vegna málsins Innlent Halla Tómasdóttir tekur stökk í nýrri könnun Prósents Innlent Læknirinn mátti læsa dætur sínar inni eftir allt saman Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Vaknaði og barnið var horfið Innlent Fleiri fréttir „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Sjá meira