Aron og Katrín vinsælustu nöfnin árið 2013 Atli Ísleifsson skrifar 27. nóvember 2014 13:42 Aron, Katrín, Aron (efri röð). Katrín, Aron, Katrín (neðri röð) Vísir
Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á árinu 2013 en Katrín vinsælasta stúlkunafnið. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar um mannanöfn og afmælisdaga. „Þór var langvinsælasta annað eiginnafnið hjá drengjum, en þar á eftir Freyr og Máni. María var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum ásamt Rós, en þessi nöfn hafa vermt annað og fjórða sætið undanfarin ár. Á eftir þeim kom stúlkunafnið Lilja sem þriðja vinsælasta síðara eiginnafn nýfæddra stúlkna. Þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun 2014 voru 10 algengustu einnefnin og fyrstu eiginnöfnin alveg þau sömu og árið 2009. Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karl- og kvenmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2009. Flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn. Í ársbyrjun 2014 voru þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María, Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2009. Kvenmannsnafnið Anna er hins vegar afar vinsælt sem fyrra nafn, en hún reyndist fyrra nafnið í sex af 10 algengustu tvínefnunum,“ segir í frétt Hagstofunnar. Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið og er algengara að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, frá október og fram í mars. „Alls eru 51,5% allra afmælisdagana frá apríl til september. Í upphafi árs 2014 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. september, alls 1.014 einstaklingar. Fæstir áttu afmælisdag á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 208 manns, en að öðru leyti jóladag (657) og aðfangadag (707). Tólf algengustu eiginnafn nýfæddra drengja árið 2013 (fjöldi innan sviga): 1. Aron (45) 2. Alexander (35) 3. Viktor/Victor (33) 4. Jón (32) 5.-8. Guðmundur, Kári, Kristján/Kristian/Christian, Kristófer (26) 9.-12. Jóhann, Róbert/Robert, Stefán/Stefan, Tómas (23) Tólf algengustu eiginnafn nýfæddra stúlkna árið 2013 (fjöldi innan sviga): 1. Katrín (37) 2. Emilía/Emelía (35) 3. Sara (34) 4.-5. Elísabet/Elísabeth, Eva (25) 6. Emma (24) 7.-8. Rakel, Viktoría (23) 9.-12. Birta, Embla, Freyja, Lilja (22)
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira