Tvöfalt siðgæði í málum flóttamanna Linda Blöndal skrifar 23. nóvember 2014 19:15 Þórhildur Sunna Ævarsdóttir mannréttindalögfræðingur hélt harðorða ræðu um málefni flóttamanna í dag.
Menningar- og friðarsamtök íslenskra kvenna (MFÍK) stóðu fyrir málþinginu FARÐU BURT í dag í Iðnó um málefni flóttamanna. Samtökin, sem hafa starfað samfellt frá árinu 1951, fengu erlenda flóttamenn til segja stuttlega frá lífi sínu og reynslu, en einnig voru flutt erindi sem snúa að lagalegri stöðu flóttamanna, viðhorfi stjórnvalda og fjölmiðla. Málþingið stóð frá klukkan tíu í morgun til klukkan fimm.TvískinnungumÞórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður MFIK, setti málþingið og gagnrýndi harðlega meðal annars innilokun eða fangelsun flóttamanna og það sem hún nefnir tvískinnung stjórnvalda. Hún sagði yfirvöld hér á landi nota öll möguleg verkfæri til að senda flóttafólk úr landi. Hún gagnrýndi líka stjórnvöld fyrir að vera ekki sýnileg á fundinum og að lykilfólk í málaflokknum hafi ekki mætt til umræðnanna.Mismunað vegna hörundslitarÞeir flóttamenn sem héldu erindi á málþinginu, frá Senegal, Íran og Afganistan, vildu ekki veita viðtöl um efni fundarins. Þórhildur Sunna sagði meðal annars í ræðu sinni að daglega fengju flóttamenn hér á landi skilaboðin „Farðu burt"og því væri viðeigandi að ræða mál flóttamanna undir þeirri yfirskrift. Þessu þyrfti að breyta. Hún sagði að hér ríkti ekki jafnrétti því sumir erlendir ríkisborgarar, helst hvítir á hörund, fengju góðar mótttökur, sér í lagi væru þeir á vegum einhvers innan stjórnkerfisins. Lögleiða Flóttamannasamning SÞMargar ályktanir voru samþykktar á fundinum, til dæmis að endurskoða ætti Dyflinarreglugerðina sem oftast er vísað til þegar flóttamenn eru sendir úr landi. Útfærslu hennar ætti að taka til gagngerrar skoðunar með samkennd og vernd í fyrirrúmi. Íslendingar ættu að axla ábyrgð á við aðrar þjóðir í móttöku flóttafólks. Þá var samþykkt að Ísland ætti að lögleiða Flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna án tafar og að fyrirmæli Mannréttindadómstóls Evrópu um bann við endursendingum flóttamanna við tilteknar aðstæður ætti að innleiða í reglur hérlendis.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Fleiri fréttir Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Sjá meira