Góðverk eldri manns: „Það er frábært að vita af svona fólki í nágrenninu“ Kjartan Atli Kjartansson skrifar 4. desember 2014 11:35 Hér má sjá manninn að störfum í morgun. Mynd/BHM
Eldri maður í Hafnarfirði ákvað að létta undir með samborgurum sínum í morgun og mokaði snjó í kringum inngang á leikskólann Brekkuhvamm í Hafnarfirði. Þetta gerði maðurinn, að því er virðist, óumbeðinn. Bragi Magnússon, íbúi í hverfinu, hreifst mjög af þessu framtaki og skrifaði um það á Facebook-síðu sína. „Þessi maður, eflaust í kringum áttrætt, var mættur í morgun fyrir utan leikskólann til að moka snjó eftir að hafa klárað sína eigin stétt í næsta húsi. Hægt og rólega kláraði hann verkið án þess að nokkur hafi beðið hann um það. Hann einfaldar þar með daginn hjá fullt af fólki sem kemur með og sækir svo börnin sín ómeðvitað um þetta góðverk,“ skrifaði hann og bætti við: „Eflaust vinnur hann í gegnum liðaverki og annað en kemur ekki að sök. Ég tek hatt minn ofan fyrir þessum manni og skora á okkur öll að taka hann okkur til fyrirmyndar. Ég að minnsta kosti lít upp til þessa manns og ætla mér að gera betur sjálfur.“Í snörpu samtali við blaðamann Vísis sagðist Bragi hafa horft á manninn moka snjó í morgun. Eins og Bragi sagði á Facebook-síðu sinni, var maðurinn að moka stétt fyrir utan sitt eigið heimili. „Svo rölti hann í makindum yfir götuna og byrjaði að moka fyrir utan leikskólann. Síðan komu börnin að honum, hæstánægð og spjölluðu við hann.“ Bragi er manninum þakklátur: „Mig langar eiginlega bara að gefa honum blómvönd. Það er alveg frábært að vita af svona fólki í nágrenninu.“Hér er önnur mynd af manninum.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira