Innlent

Bein útsending: Landsmenn kveðja árið 2014 með flugeldum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Gleðilegt nýtt ár!
Gleðilegt nýtt ár!
Vísir sendir lesendum sínum nær og fjær – til sjávar og sveita – bestu óskir um farsælt nýtt ár. Megi árið 2015 færa okkur öllum frið og hamingju í hjarta.

Árið hefur verið afar viðburðarríkt og ekki síður fyrir Vísi því lesendur hafa aldrei verið fleiri. Því ber að þakka ykkur öllum kærlega fyrir samfylgdina og óskar Vísir þess að komandi ár verði alveg jafn góð.

Þeir sem hafa ekki tök á að fylgjast með hinni árlegu flugeldasýningu í Reykjavík geta fengið smjörþefinn af henni með því að fylgjast með látunum í vefmyndavél Mílu.

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!




Fleiri fréttir

Sjá meira


×