Innlent

Ráðherra staðfesti ekki lokun flugbrautar

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Friðrik Pálsson er forsvarsmaður Hjartans í Vatnsmýri.
Friðrik Pálsson er forsvarsmaður Hjartans í Vatnsmýri. Fréttablaðið/GVA
„Teljum við afar brýnt að innanríkisráðuneytið staðfesti við Reykjavíkurborg að ekki liggi fyrir samþykki þess um hugsanlega lokun flugbrautar 06/24 á Reykjavíkurflugvelli,“ segir bréfi samtakanna Hjartað í Vatnsmýri til Ólafar Nordal innanríkisráðherra.

Einnig vilja samtökin að ráðuneytið hlutist til um að heilbrigðisráðuneytið meti áhrif lokunar brautar 06/24 á sjúkraflug.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×