Færri þurfa mataraðstoð Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 29. nóvember 2014 22:25
Mun færri leita aðstoðar hjá Hjálparstarfi kirkjunnar nú, en þegar mest var á fyrstu árunum eftir hrun. Félagsráðgjafi hjálparstarfsins segir þetta merki um að efnahagslífið sé á uppleið en á sama tíma sé fólk og fyrirtæki tregari við að gefa til starfsins. Þessa dagana er fjöldi hjálparsamtaka hér á landi að undirbúa jólaaðstoð. Slík aðstoð hefur verið í boði um árabil en tilgangurinn er að gera efnalitlum fjölskyldum kleift að halda jól. Umsóknir eru þegar farnar að berast en hjá Hjálparstarfi kirkjunnar er búist við að fjöldi umsókna verði svipaður og í fyrra. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar, segir langstærsta hópinn sem leitar sér aðstoðar hjá þeim vera öryrkja og einstæða foreldra. Vilborg segir að strax eftir hrun hafi þeim sem þurftu á mataraðstoð hjálparsamtakanna að halda fjölgað mikið. Þegar mest var hafi um fimm þúsund fjölskyldur leitað til Hjálparstarfs kirkjunnar og óskað eftir aðstoð. Síðustu misseri hafi þeim farið fækkandi og í dag séu um tvö þúsund og fjögur hundruð fjölskyldur sem leita til samtakanna til að fá mataraðstoð. „Fleiri sem ekki eru í þessum hrikalega vanda sem þeir voru í fyrst eftir hrun,“ segir Vilborg og það skipti miklu máli að fleiri hafi atvinnu en þá. Vilborg telur þetta ákveðið merki um að efnahagslífið sé að rétta úr sér. Fólk og fyrirtæki séu hins vegar tregari nú en strax eftir hrun til að gefa til samtakanna. „ Í góðærinu þá var miklu erfiðara að afla peninga. Það er einhvern veginn þegar að fólk hefur það erfitt þá er eins og það muni frekar eftir hinum sem hafa það erfiðara og gefa. Við finnum mikinn mun á því bara hvað við erum að fá bæði frá almenningi, fyrirtækjum og stofnunum,“ segir Vilborg.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Sjá meira