Kósý stemning í kvöld í Offiseraklúbbnum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 6. september 2014 14:30 Marteinn Valdimarsson, hjónin Elín og Tom Griffin sem kynntust á Keflavíkurflugvelli, Kevyn Silverman, Erlingur Bjarnason, María Ben Erlingsdóttir og Gunnar Þórmarsson mætt í Offiseraklúbbinn. Mynd/OlgaBjört@vf.is „
Þetta er í fyrsta skipti sem efnt er til endurfunda Bandaríkjamanna og Íslendinga sem unnu á Keflavíkurflugvelli meðan herinn var þar, á árunum 1952 til 2006,“ segir María Ben Erlingsdóttir, framkvæmdastjóri Keflanding, um samkomu í Offiseraklúbbnum á flugvallarsvæðinu síðdegis í dag. Þangað hafa um 120 manns boðað komu sína, þar af 25 Bandaríkjamenn. María segir rútufyrirtækið Guðmund Tyrfingsson, sem á Keflanding, skipuleggjanda samkomunnar. „Endurfundir NASKEF (Naval Air Station Keflavik) er einn af viðburðum Ljósanætur í Reykjanesbæ, enda munu samkomugestir verða fluttir í rútum niður að höfn í lok dags til að fylgjast með glæsilegri flugeldasýningu við höfnina.“ Allt hefur þetta átt nokkurn aðdraganda, að sögn Maríu. „Við fengum military.com, sem er 25 milljón manna vefur, í lið með okkur og það voru tugþúsundir sem lásu orðsendingar okkar. Sú fyrsta birtist í maí á þessu ári en við hefðum þurft að vera fyrr á ferðinni,“ segir hún. „Þrátt fyrir það erum við að fá hingað 25 manns að utan og ágæta þátttöku í heildina.“ María segir Offiseraklúbbinn líta út nánast eins og hann var í tíð Kanans á vellinum. „Þetta var mjög vinsæll staður og það verður kósý stemning þar í kvöld,“ segir hún. Meðal atriða á dagskránni verða ávörp bæjarstjóra Reykjanesbæjar og bandaríska sendiherrans á Íslandi. „En þetta eru endurfundir og við viljum að fólk blandi fyrst og fremst geði hvert við annað,“ segir María. „Svo verður rosa flott kvöldverðarhlaðborð, forréttur og eftirréttur og áður en fólk fer verður dregið í happdrætti með 30 flottum vinningum frá fyrirtækjum hér á Suðurnesjum.“ Erlingur Bjarnason, faðir Maríu, er einn þeirra sem hlakka til kvöldsins. Hann var framkvæmdastjóri birgðadeildar varnarliðsins í 26 ár og segir hafa verið bæði sjokk og söknuð í hans huga þegar herinn fór með stuttum fyrirvara. „Ég átti góð ár á vellinum og eignaðist marga góða vini sem ég held sambandi við en held að þeir bandarísku séu ekki með í hópnum sem hingað er kominn,“ segir hann.
Mest lesið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira