Ríkisstjórnin sparar milljarð með minni atvinnuleysisbótum Heimir Már Pétursson skrifar 21. desember 2014 13:04 Oddný Harðardóttir og Vigdís Hauksdóttir. Vísir/Daníel/GVA
Fyrrverandi fjármálaráðherra segir að nýlega samþykkt fjárlagafrumvarp endurspegli mikinn áherslumun núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar. Til að mynda spari núverandi ríkisstjórn milljarð króna með því að stytta bótatíma atvinnulausra um sex mánuði sem fyrri ríkisstjórn hefði aldrei gert. Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, og Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra, ræddu meðal annars muninn á stefnu núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar í ríkisfjármálum í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Oddný sagði muninn á þessum tveimur ríkisstjórnum mikinn. „Ég er til dæmis að tala um það að ráðast á bótatíma langtíma atvinnulausra og spara sér þar milljarð í útgjöldum. Ríkisstjórnin gerir það með því að stytta bótatímann um sex mánuði fyrir langtímaatvinnulausa. Sumir fá engar bætur vegna þess að aðstoð sveitarfélagana er þannig að þar er tekið tillit til til dæmis tekna maka,“ sagði Oddný. Að auki hafi ríkisstjórnin lagt af auðlegðarskattinn sem skapaði ríkissjóði 10 milljarða í tekjur. Vigdís segir fráleitt að fullyrða að ríkisstjórnin sé stjórn hinnar efnameiri og láti sér fátt um finnast varðandi hag þeirra minna efnuðu. „Forseti ASÍ hefur verið að ráðast á þessa ríkisstjórn fyrir akkúrat þennan orðaflaum eins og Oddný bar hér fram. Að við værum að gera eitthvað meira fyrir þá sem að hafa það betra. Ég skil ekki hvernig fólk getur farið fram úr á morgnana þegar það er búið að gagnrýna það að tæplega 100 þúsund Íslendingar fengu skuldaniðurfellingu,“ sagði Vigdís. Þá gagnrýndi Oddný stjórnarflokkanna fyrir niðurskurð í framhaldsskólakerfinu með því að meina 25 ára og eldri að sækja framhaldsskólana. „Þá er ég nú búin að finna reglugerð sem Katrín Jakobsdóttir undirritaði sem menntamálaráðherra frá árinu 2012 þar sem nákvæmlega þetta ákvæði er inni, að þeir sem eru 25 ára og eldri eru síðastir inn í framhaldsskólana,“ sagði Vigdís. Oddný sagði sveigjanleika íslenska framhaldsskólakerfisins hins vegar helsta kost skólans. Reglugerðina sem Vigdís minntist á væri um þá röð sem fólk væri tekið inn í framhaldsskólana en ekki til að meina eldri nemendum skólagöngu eins og núverandi ríkisstjórn hefði ákveðið að gera. „Þeir horfa á það sem þeir setja í menntun sem útgjöld en ekki sem fjárfestingu. Samt sýna fræðin það að hvert ár í framhaldsskóla eykur hagvöxtin sem hver einstaklingur skapar um mörg prósent,“ sagði Oddný G. Harðardóttir í Sprengisandi í morgun.
Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira