Hænan Guðrún Ragnheiður með átján unga Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 21. desember 2014 18:58
Hænan Guðrún Ragnheiður á bænum Rima í Biskupstungum í Bláskógabyggð þykir einstök því hún elur upp átján unga. Best þykir henni að fá ost en hún passar þó alltaf að ungarnir fái fyrst bita áður en hún fær sér sjálf. Það eru þau Konráð Ásgrímsson og Elín Siggeirsdóttir sem búa í Rima. Þau eru með nokkrir gæsir, sem Konráð sér alfarið um og nokkrar endur eru líka á bænum. Þá eru þau með nokkur stór og öflug býflugnabú, sem gefa þeim mikið magn af hunangi. Landnámshænurnar eru sérsvið Elínar en þar sker hænan Guðrún Ragnheiður sig úr því hún er með átján unga hjá sér í uppeldi. „Þetta eru yndislegar hænur og þessi hæna er alveg einstök. Hún kom hingað með tvö egg og við laumuðum ungungum undir hana um leið og þeir klöktust út. Hún tók við þeim öllum, átján stykkjum og hún sér mjög vel um þá“, segir Elín og bætir við. „Hún matar þá úr gogginum og týnir úr bestu bitana fyrir ungana, síðan étur hún restina“. Guðrún Ragnheiður er mjög hrifin af osti. „Já, það er uppáhaldið, ég stelst alltaf til að gefa þeim eina ostsneið á dag, það er rifrildi um ostinn. Hún skilur sjaldnast nokkuð eftir af honum, laumar kannski einum bita upp í sig þegar hún er búin að gefa ungunum“, segir Elín. En nafnið á hænunni, Guðrún Ragnheiður, hvaðan kemur það ? „Sú sem gaf okkur hænurnar og stóð fyrir því að við fengum þær heitir Guðrún Ragnheiður og því fannst mér tilvalið að skíra hænuna í höfuðið á henni“, segir Elín hænsnabóndi í Rima.
Mest lesið Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir Innlent Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Innlent „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Innlent Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Innlent Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Innlent Metfjöldi gesta tvo daga í röð Innlent Íranir mótmæla á ný Erlent Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Innlent Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Innlent Minnst tólf farist í snjóflóðum á einum mánuði Erlent Fleiri fréttir Íslendingar gerðu það sem tröllunum mistókst Þrír sinueldar á innan við sólarhring Kerfið er vandamálið ef það styður ekki nýsköpun Metfjöldi gesta tvo daga í röð Vissu ekki að bíllinn hefði oltið fyrr en þær sáu myndir „Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Bíll við bíl undir Eyjafjöllum: „Þetta er allt í kaos“ Heitur matur í boði á ný Deilt um opnunartímann: „Sonur minn var hundfúll út í mig“ Sinueldur barst í heyrúllur í Hvalfirði Framboðslistinn tilbúinn í Fjarðabyggð Tryggingar lækki verulega verði ráðist í nauðsynlegar úrbætur Átta konur eru í slökkviliðum í Árnessýslu Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Lögreglan lokaði fyrir umferð í Hlíðarfjall Fjölgaði í flokknum vikurnar fyrir forvalið Skipti um akrein í tæka tíð þegar bíll ók á móti umferð Kjósa um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps Gagnrýnir að ekki séu settar strangari kröfur á verktaka Handtekinn fyrir að bakka ítrekað á hús Haraldur Sigurðsson – Halli – er látinn Spyr hvernig fólk muni ná endum saman Verkalýðsleiðtogar hjóla í Viðskiptaráð Einn leikskóli inn, annar út og starfsemin á flakki milli húsa „Ég held ég hafi migið í saltan sjó“ Skellur fyrir Trump „Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Gaf spellvirkjunum bakkelsi eftir að lit var skvett á heimilið Setið um fjölskyldur félagsráðgjafa og börn þeirra áreitt Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Sjá meira