Óvenjumörg útköll vegna vatnsleka í borginni Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 21. desember 2014 15:18 Varðstjóri hjá slökkviliðinu hvetur fólk til að hreinsa snjó frá niðurföllum og af svölum svo vatn renni ekki inn í hús. V'isir/Valli
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gær vegna vatnsleka víðsvegar um borgina. Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir óvenjumörg útköll í jólamánuðinum, og aðstæður víða erfiðar. Slökkviliðið sinnti níu útköllum í gærkvöldi og þurfti um tíma að senda alla bíla á sama tíma í dæluverkefni. Lekar komu meðal annars upp á Landspítalanum við Hringbraut, Listaháskólanum og iðnaðarhúsnæði í Kópavogi. Lekarnir voru þó allir minniháttar, en lekinn kom í öllum tilfellum utanfrá. Þórður Bogason, vaktstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, segir starfið þó hafa gengið ágætlega. „Þetta varð ekki eins mikið og við bjuggumst við en voru samt nokkur tjón og það er náttúrulega sérstaklega slæmt að fá svona tjón rétt fyrir jólin. Við bjuggumst samt við að þetta yrði aðeins meira. Samt varð töluvert tjón á nokkrum stöðum.“ Þórður segir að óvenjumikið hafi verið um vatnsleka í desember. „Það er í tengslum við þessa hlýju, þegar hlákan kemur. Það er búið að snjóa, koma klaki, snjór ofan á klakann, það verða mörg lög og svo kemur svona skyndileg hláka. Þetta hefur bæði verið af svölum sem hafa fyllst. Ef niðurfallið er stíflað þá fer vatnið ekkert í burtu og kemur upp og fer yfir þröskuldinn.“ Hann hvetur fólk til að hreinsa snjó frá niðurföllum og af svölum svo vatn renni ekki inn í hús. „Fólk þarf að gæta sín rosalega vel þegar snjóar svona í kringum hurðir og svalir og ofan af þaki. Þetta er erfiðleikaástand þegar veðráttan fer svona með okkur.“
Mest lesið Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Innlent 33 ára sósíalisti hafði betur gegn Cuomo í New York Erlent Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Innlent Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Innlent Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Innlent Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Innlent Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Innlent Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Innlent Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Innlent Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Innlent Fleiri fréttir Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Meirihluti vill stöðva málþóf á Alþingi Vilja ábendingar um „kettlingamyllur“ og síendurtekin got Verður nýr skólameistari á Húsavík Senda þjóðinni „skýr skilaboð“ á óróatímum Skildi ekki hvers vegna kennarinn var ekki rekinn Ræddu veiðigjöldin til að ganga hálf fjögur Slagsmál á hóteli í miðborginni Margir í vandræðum vegna of skyggðra rúðna Tillögur um skattalækkanir felldar: Segir ótrúlegt að hlusta á rök „Skattfylkingarinnar“ Segja manninn hafa glímt við alvarleg veikindi Reiður Trump, fiskeldisáform í Eyjafirði og fjölbragðaglíma Efla samstarf Háskóla Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar Vilja bjóða út eftirlit en meirihlutanum líst ekkert á það Stuðningur við veiðigjaldafrumvarpið dregst saman Ekki um sama þvott að ræða í Björg og Fönn Páll skipstjóri krefur Ríkisútvarpið um milljónir króna „Þetta rugl í Kastljósi í gær af hálfu forsætisráðherra er skammarlegt“ Vopnahlé í Miðausturlöndum í hættu og veiðigjöldin enn til umræðu Eldur í tveimur taugrindum Sektaður um 240 þúsund fyrir að halda sauðfé í Grindavík Fundað á Alþingi fram á nótt og framhald strax klukkan tíu Sjá meira