„Ég áttaði mig ekki á að mér var að blæða út” Sigrún Ósk Kristjánsdóttir skrifar 22. september 2014 18:35
Björgunarsveitarmaðurinn Daníel Magnússon lenti í alvarlegu slysi þar sem hann var einn á ferð í fjallgöngu á Botnssúlum í Hvalfirði, en þangað fór hann til að kanna aðstæður fyrir nýliðapróf Björgunarfélags Akraness. Hann hrasaði í um 800 metra hæð og rann um 60 metra niður grýtta og bratta fjallshlíð. „Þegar ég byrjaði að renna man ég eftir því að hafa hugsað að nú væri þetta bara búið. Það var mjög sérstök tilfinning,” segir Daníel. Hann lifði af en hlaut lífshættulega áverka, meðal annars opið lærbrot. Spurður segist hann ekki hafa gert sér grein fyrir því þá hversu illa slasaður hann var. “Ég áttaði mig ekki á því að mér var í raun að blæða út. Það var ekki það sem ég hugsaði heldur beislaði ég mig í að hugsa: Hvað get ég gert til að bæta ástandið,” segir Daníel sem notaði meðal annars göngubúnað sinn til að spelka fótlegginn. Farsímasamband var lélegt á svæðinu en Daníel tókst að hringja í 112 og kalla eftir aðstoð. Björgunin reyndist erfið því veðrið hafði versnað til muna frá því Daníel lagði af stað og þyrla Landhelgisgæslunnar gat ekki lent á slysstað. Mál Daníels var tekið fyrir í fyrsta þætti af Neyðarlínunni sem var sýndur á Stöð 2 í gær. Meðfylgjandi er brot úr þættinum.
Tengdar fréttir Leitar konunnar sem tók við Neyðarlínusímtalinu "Mig bráðvantar að finna þessa konu og verð afar þakklát ef einhver getur aðstoðað mig við það,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona á Stöð 2. 20. ágúst 2014 11:11 Spila raunveruleg símtöl þar sem kallað er eftir hjálp Ung kona sem eignast barn ein á baðherbergisgólfi, ökumaður sem hafnar á hvolfi í á eftir bílveltu og fjölskyldufaðir sem háls- og hryggbrotnar í sumarbústað. Þessi mál eru meðal umfjöllunarefnis í nýrri þáttaröð af Neyðarlínunni. 17. september 2014 15:45 Mest lesið Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Sláandi niðurstöður um afstöðu Dana til sambandsins við Bandaríkin Erlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira
Leitar konunnar sem tók við Neyðarlínusímtalinu "Mig bráðvantar að finna þessa konu og verð afar þakklát ef einhver getur aðstoðað mig við það,“ segir Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona á Stöð 2. 20. ágúst 2014 11:11
Spila raunveruleg símtöl þar sem kallað er eftir hjálp Ung kona sem eignast barn ein á baðherbergisgólfi, ökumaður sem hafnar á hvolfi í á eftir bílveltu og fjölskyldufaðir sem háls- og hryggbrotnar í sumarbústað. Þessi mál eru meðal umfjöllunarefnis í nýrri þáttaröð af Neyðarlínunni. 17. september 2014 15:45