Mjög líklega myglusveppur í Árseli Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 28. maí 2014 15:44 Í minnisblaðinu segir að í Töfraseli, sem er í kjallara Ársels, hafi raki mælst 90-100 prósent á einum stað, en meðalraki er um 22 prósent. vísir/valli
Grunur leikur á að myglusveppur hafi fundist í frístundamiðstöðinni Árseli í Árbæ. Líkt og Vísir greindi frá í gær fundust óhreinindi undir parketi í frístundamiðstöðunni, en samkvæmt forstöðumanni Ársels liggja niðurstöður um hvort myglusvepp sé að ræða ekki fyrir. Samkvæmt minnisblaði skoðunaraðila frá 28.nóvember 2013 mátti sjá rakaummerki alls staðar í byggingunni, í límtrésbitum í lofti, dökka tauma og bólgnar loftplötur. Engin tilkynning hefur borist til foreldra barna í Árbæjarskóla vegna þessa.Parket í danssal.Töluverður óþefur í húsinu Í minnisblaðinu segir að í Töfraseli, sem er í kjallara Ársels, hafi raki mælst 90-100 prósent á einum stað, en meðalraki er um 22 prósent. Rakinn mældist undir dúk í innri sal þar sem samskeyti eru á milli útveggja. Jafnframt kemur fram að búast megi við að þar vaxi mygla og aðrar rakasæknar lífverur. Einnig er við því að búast í danssal Ársels og eru taldar líkur á að myglan hafi náð að vaxa upp í efsta lag gólfflatar. Nokkur óþefur hafði fundist í húsinu um tíma, en samkvæmt starfsmönnum Ársels hafði óþefurinn ágerst síðastliðið eitt til tvö ár.Rakaummerki í límtrésbitum.Einkenni vegna myglusvepps líkjast oft flensueinkennum. Einkennin tengjast oft efri hluta öndunarvegar, höfuðverkur, erting í augum, stíflað nef og hósti og oft fylgir magaverkur og óþægindi í maga. Sumar tegundir myglusveppa geta valdið ofnæmi og astma eða gert astma verri hjá þeim sem þjást af honum. Áhrifin verða oft meiri hjá ungum börnum, gömlu fólki og þeim sem glíma við sjúkdóma. Frístundaheimilið Ársel er opið alla virka daga frá kl 13.40 til klukkan 17 fyrir börn í Árbæjarskóla á aldrinum sex til níu ára.
Tengdar fréttir Foreldrum barna ekki tilkynnt um hugsanlegan myglusvepp í Árseli Óhreinindi fundust undir parketi í danssal í mars síðastliðnum, en niðurstöður um hvort myglusvepp sé að ræða liggja ekki fyrir. 27. maí 2014 18:12 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Innlent Fleiri fréttir Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sjá meira
Foreldrum barna ekki tilkynnt um hugsanlegan myglusvepp í Árseli Óhreinindi fundust undir parketi í danssal í mars síðastliðnum, en niðurstöður um hvort myglusvepp sé að ræða liggja ekki fyrir. 27. maí 2014 18:12