Áhyggjuefni hvert stefnir Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 11. október 2014 18:40
Komum á geðsvið Landspítalans hefur fjölgað umtalsvert undanfarin ár. Fyrstu níu mánuði ársins 2010 komu að meðaltali rúmlega tólf einstaklingar á deildina. Fyrstu níu mánuði þessa árs er þessi talan komin í 14,8 sem þýðir 20,7 prósent fjölgun yfir fimm ára tímabil. Á sama tíma og sjúklingum geðsviðs fjölgar og fjölgar, hefur rekstrarframlagið frá ríkissjóði lækkað. Í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið McKinsey gerði árið 2013 kom fram að rekstrarkostnaður geðsviðs hafði dregist saman um 17 prósent á fjögurra ára tímabili frá 2008-2012, mest allra klínískra sviða Landspítala. „Já, þetta er eins og öfugt umbunarkerfi. Við vinnum hraðar og framleiðum meira, ef það er hægt að tala um framleiðslu á spítala, og fáum minni pening. En þetta er sá nöturlegi raunveruleiki sem við okkur blasir. Við ráðum við þetta eins og staðan er í dag, en hversu lengi, það veit ég ekki,“ segir María Einisdóttir, framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans. Þá er einnig sláandi að skoða nýtingu deilda á geðsviði. Fyrstu níu mánuði ársins var nýtingin alls 95 prósent á þremur deildum sviðsins, þar af 99 prósent á móttökugeðdeild 32A. Þegar skoðaður er nýliðinn septembermánuður kemur í ljós að nýtingin er 98 prósent. Á einni deild sviðsins er staðan sérstaklega erfið en nýtingin á móttökugeðdeild 33C var 106 prósent í síðasta mánuði. „Já, það er stígandi í nýtingatölum hjá okkur, þær hafa hækkað og það er áhyggjuefni. Við þyrftum að nýta milli svona 80 og 85 prósent til að anna álagstímum, en það hefur verið erfitt þetta ár,“ segir María.Ræður geðsvið Landspítalans við svo hátt nýtingarhlutfall?„Við höfum gert það hingað til, en það er áhyggjuefni hvert þetta stefnir,“ segir María. Þá segir María að yfirvofandi verkfall lækna sé mikið áhyggjuefni fyrir geðsvið spítalans. „Það er náttúrulega grafalvarlegt mál eins og alls staðar á Landspítalanum. Við myndum keyra deildirnar á vinnuframlagi yfirlækna. Ég vona bara að við komumst í gegnum þetta,“ segir María.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Fleiri fréttir Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Sjá meira