Rifta samningi og auglýsa á nýjan leik Sveinn Arnarsson skrifar 1. desember 2014 08:45 Arctic Oddi gerði samkomulag við Byggðastofnun. Fyrirtækið sendi stofnuninni bréf fyrir skömmu þar sem það sagðist ætla að hætta bolfiskvinnslu á Flateyri. Þar með riftir Byggðastofnun samningnum.
Byggðastofnun hefur rift samningi vegna aflamarks á Flateyri og auglýst að nýju eftir samstarfsaðilum vegna allt að 300 þorskígildistonna. Fyrirtækin Arctic Oddi, Valþjófur og Vísir komust á fimmtudag að samkomulagi sem á að styrkja stoðir atvinnulífs á Flateyri og Þingeyri. Samkomulagið felst í því að Arctic Oddi muni flytja starfsemi sína frá Flateyri í húsnæði sem var í eigu Vísis á Þingeyri. Byggðastofnun hefur látið Arctic Odda fá byggðakvóta að kostnaðarlausu til vinnslu á Flateyri og þeim er ekki heimilt að flytja hann í annað byggðalag. Samkvæmt tilkynningu sem fyrirtækin þrjú sendu frá sér er samkomulagið gert með fyrirvara um samþykki Byggðastofnunar sem gert er ráð fyrir að liggi fyrir um miðjan desember. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, veit ekki hvers lags samkomulag það eigi að vera.Aflamarkið var afhent Arctic Odda með því skilyrði að það yrði unnið á Flateyri. Um það gilda reglugerðir. Fyrirtækjum er ekki heimilt að framselja aflamarkið eða flytja það í annað sjávarpláss. Byggðastofnun ákvað þar af leiðandi að rifta samningi sínum við Arctic Odda því aflamarkið átti að nota til að styðja við byggðina á Flateyri. Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, telur málið í raun einfalt. „Byggðastofnun gerir samning við Arctic Odda um að viðhalda fiskvinnslu á Flateyri. Samningurinn var sá að Byggðastofnun afhendi þeim 300 tonna byggðakvóta, án endurgjalds, með því skilyrði að fyrirtækið myndi koma með eitthvað á móti. Fyrst fyrirtækið hætti bolfiskvinnslu með tilkynningu til okkar þá er ekkert hægt annað að gera en að rifta samningnum og auglýsa hann upp á nýtt.“ Þóroddur Bjarnason, formaður stjórnar Byggðastofnunar, segir Byggðastofnun hafa náð miklum árangri í að tryggja heilsárstörf í fiskvinnslu. „Á sumum stöðum hefur þetta gengið afar vel og 60-80 heilsársstörf verið tryggð, á öðrum stöðum hafa engir samstarfsaðilar fundist og heimildir Byggðastofnunar þá verið nýttar annars staðar. Það kemur hins vegar ekki til álita að einkaaðilar geti byggt útgerð sína á ókeypis aflaheimildum Byggðastofnunar. Stofnunin ber ábyrgð gagnvart þjóðinni og íbúum allra sjávarþorpa að jafnræðis sé gætt og þetta vandasama verkefni sé leyst af hendi með opnum og skilvirkum hætti,“ segir Þóroddur.
Mest lesið Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Geimfari Apollo 13 látinn Erlent Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Innlent Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Innlent Fleiri fréttir Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Esjan snjólaus og það óvenju snemma Íslendingurinn í Grikklandi laus úr haldi Dvalarleyfi langtum dýrara í hinum Norðurlöndunum Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Sjá meira