Innlent

Erfiður vetur gæti blasað við sýrlenskum flóttamönnum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vísir/Getty
Um 1,7 milljón sýrlenskra flóttamanna sem dvelja í Jórdaníu, Líbanon, Tyrklandi, Írak og Egyptalandi eftir að hafa flúið stríðsátök í heimalandi sínu gætu átt í vændum erfiðan vetur. Ástæðan er sú að Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki náð að tryggja nægilegt fjármagn í svokallað matarmiðakerfi sitt sem tryggir flóttamönnunum fæði.

Síðan stríðið í Sýrlandi braust út árið 2011 hafa Sameinuðu þjóðirnar látið sýrlenska flóttamenn hafa matarmiða en með þeim geta þeir keypt mat í verslunum. Talið er að með kerfinu hafi um 800 milljónir komið inn í hagkerfi landanna þar flóttamennirnir dvelja nú.

Í frétt Guardian kemur fram að Sameinuðu þjóðirnar þurfi nú 64 milljónir dala svo að hægt verði að útdeila matarmiðum í desember. Ef ekki fæst fjármagn blasir við að flóttamennirnir muni eiga í erfiðleikum með að kaupa sér mat.

Því er nú biðlað til þeirra sem gefið hafa fjármagn í verkefnið að tryggja að það geti haldið áfram svo afleiðingarnar verði ekki eins skelfilegar og Sameinuðu þjóðirnar telja að geti orðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×