Innlent

Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar vildi að Grapevine breytti frétt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var erlendis í vikunni án þess að vera skráður á fjarvistarskrá þingsins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var erlendis í vikunni án þess að vera skráður á fjarvistarskrá þingsins. Vísir/Vilhelm
Upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar, Sigurður Már Jónsson, fór fram á það við miðilinn Grapevine að hann breytti frétt sinni, “PM Ditches Parliament To Go On Holiday, Doesn‘t Tell Anyone”, sem birt var í morgun. Á íslensku gæti fyrirsögnin útlagst sem „Forsætisráðherra yfirgefur Alþingi, segir engum frá því.“

Frétt Grapevine byggði á umfjöllun DV um utanlandsferð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar. Eins og kunnugt er var hann erlendis í vikunni að halda upp á afmæli konu sinnar á meðan 2. umræða um fjárlögin fór fram en var ekki skráður í fjarvistarskrá þingsins.

Haukur Már Helgason greinir frá afskiptum upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar í frétt á Grapevine í kvöld.

Vildi Sigurður að sögninni “ditches” yrði skipt út fyrir aðra sögn í fyrirsögninni. Þá sagði hann ekki rétt að tala um í fyrirsögn að forsætisráðherrann hefði ekki sagt neinum frá fyrirhugaðri utanlandsferð sinni þar sem hann sagði nokkrum frá henni, þó að Alþingi hafi ekki verið kunnugt um hana.

Þá sakaði Sigurður blaðamann Grapevine, sem skrifaði umrædda frétt, um að setja „fjandsamlegar“ færslur á Twitter-síðu sína auk þess sem hún bryti gegn siðareglum blaðamanna með því að pósta tenglum á fréttir sínar þar.

Sigurður hringdi bæði á skrifstofu Grapevine til að koma athugasemdum sínum á framfæri auk þess sem hann sendi miðlinum tvo tölvupósta.

Haukur greinir frá því að Sigurður hafi í samtali við blaðamann Grapevine sakað blaðamenn DV um að vera á móti ríkisstjórninni og að þeir væru ekki áreiðanlegir heimildarmenn. Þetta endurtók hann í tölvupósti til blaðsins, auk þess sem hann sakaði Fréttablaðið um að hafa farið með rangfærslur í frétt sinni um aðstoðarmenn ráðherra.

Hér má lesa nánar um afskipti upplýsingafulltrúans af fréttaflutningi Grapevine.


Tengdar fréttir

204 milljónir í laun aðstoðarmanna

Níu ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru með tuttugu manns sér til aðstoðar. Samtals fá þessir aðstoðarmenn 204 milljónir króna í árslaun. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er með sjö manns sér til aðstoðar sem fá samtals rúmar 64 milljónir króna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×