Gifti sig ekki í tippex-sandölum Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar 4. september 2014 12:00 „Prjónuð ullarslá eftir Hönnu Hlíf Bjarnadóttur sem ég keypti í Skúmaskoti í sumar er í uppáhaldi. Ótrúlega falleg, hlý og einstök flík,“ segir Álfrún. Brúna leðurjakkann keypti hún á „second hand“-markaði í Barselóna fyrir tíu árum. mynd/gva
Mér finnst mikilvægt að vera skemmtilega klædd. Ég er nánast alltaf í litríkum fötum en er meðvitað að prófa að ganga stundum í svörtu. Mér finnst föt eiginlega vera búningar og hef mjög gaman af að blanda saman ólíkum flíkum og sjá hvernig fötin breyta mér og minni líðan. Mér líður mjög illa í gallabuxum og bol, það er bara ekki ég,“ segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona, spurð út í fatastílinn. Hún segist eiga erfitt með settlegheit og ef svo ólíklega vilji til að litasamsetningin passi of vel saman þegar hún hefur sig til grípur hún til sinna ráða. „Ég þarf alltaf að hafa smá rokk í lúkkinu. Það gengur ekki að vera settlega greidd, á hælum og í litum sem passa alveg saman. Ef það gerist þá hendi ég inn einum kreisí lit eða skipti hælaskónum út fyrir grófari skó,“Áttu mörg skópör? „Mörg, kannski þrjátíu!“Háir hælar eða flatbotna? „Oftast flatbotna en hælar eru voða fínir þegar maður nennir þeim.“Hver er þín helsta tískufyrirmynd? „Mamma er einn besti stílisti sem ég þekki. Hún blandar saman gersemum úr Rauða krossinum og mjög dýrum flíkum á ótrúlegan hátt. Ætli ég hafi ekki fengið sjálfstraust til að finna minn eigin stíl út af hennar hugrekki í samsetningum.“ Spurð hvort hún kunni að sauma segist Álfrún hafa notað saumavélina talsvert á unglingsárunum í tilraunir. „Ég breytti til dæmis gallabuxum og gekk í þeim á röngunni á tímabili. Ég þyrfti að fara að rifja upp gamla takta.“ Uppáhaldshönnuðir Álfrúnar eru Marc Jacobs, Sonya Rykiel, Matthew Williamson, Chie Mihara og fleiri. Hana dreymir um að versla í KronKron en er líka dugleg við að gramsa í „second hand“-búðum. Bestu kaupin í fataskápnum segir hún brúnan leðurjakka sem hún keypti fyrir tíu árum í Barselóna og notar enn.En hver eru verstu kaupin? „Ég lét lita sandala hvíta tveimur dögum fyrir brúðkaupið mitt í sumar hjá ónefndum skósmið. Þegar ég sótti þá litu þeir út fyrir að hafa verið tippexaðir hvítir og voru svo harðir að ekki var hægt að ganga í þeim. Borgaði 10.000 krónur fyrir, fór heim í sjokki og reyndi að sannfæra sjálfa mig um að þetta væri nú bara allt í lagi. Daginn fyrir brúðkaupið, eftir svefnlausa nótt, þræddi ég allar skóbúðir bæjarins og fann loksins skó sem björguðu mér frá því að gifta mig í tippex-skónum.“Er einhver flík í skápnum í uppáhaldi? „Prjónuð ullarslá eftir Hönnu Hlíf Bjarnadóttur sem ég keypti í Skúmaskoti í sumar. Ótrúlega falleg hlý og einstök flík.“Hvað er annars að frétta? „Ég er að byrja sýningar 6. september á einleiknum mínum KAMELJÓN sem verður á fjölunum í Tjarnarbíói í september og október. Kameljón er ein mest krefjandi en jafnframt skemmtilegasta sýning sem ég hef unnið að og ég hlakka mikið til að sýna hana á ný.“
Mest lesið „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Lífið Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Lífið Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Lífið Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Lífið Kvikmyndirnar sem beðið er eftir 2026 Bíó og sjónvarp „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ Lífið Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng Lífið Fréttatía vikunnar: Bruni, Grænland og handbolti Lífið „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ Lífið Svona heldur Rakel sér unglegri Lífið Fleiri fréttir „Ég er til í að gera allt svo ég þurfi ekki að grafa þriðja barnið mitt í viðbót“ Krakkatía vikunnar: Fjöll, friðarsúlan og geimurinn Auðunn Lúthersson selur austurbæjarperlu Skautafjör á Laugarvatni í dag Fréttatía vikunnar: Bruni, Grænland og handbolti Íþróttapar keypti einbýlishús í Hafnarfirði á 162 milljónir Svona heldur Rakel sér unglegri Gugga í gúmmíbát og Patrekur Jaime í eina sæng „Átti ekki efni á Icelandair til Tene en hér er ég“ „Við náðum að nýta hverja einustu stund með pabba“ „Þessu hef ég verið háður býsna lengi“ Eigandi lúxushótels selur miðbæjarperlu Lúxusferðaforstjóri og kaupmaður selja í gamla Vesturbænum Þú færð ekki leikskólapláss en svona á að halda barnaafmæli Sólveig Anna greinir woke-ið Bergþór og Laufey selja slotið Svona sjá Pétur og Heiða leikskólavandann Eyddi kröfulistanum sem hann birti í gríni Rosalia komin með skvísu upp á arminn „Og leynigesturinn er enginn annar en…“ Inga Tinna selur höllina í Borgartúni Kiefer Sutherland handtekinn grunaður um líkamsárás Sjóðheit trend sem taka yfir á nýju ári Innflytjendamálin eru fíllinn í stofunni Júnía Lín komin í milljónaklúbbinn Skóli við rætur Vatnajökuls Faðir Dilberts allur Tvö ár af ást hjá Charlie og Laufeyju Slíðruðu sverðin á árshátíð borgarstjórnar Diddy selur svörtu einkaþotuna Sjá meira