Innlent

Beðið um lóð fyrir veitingastað við Hrafnagjá

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Hótel Valhöll á Þingvöllum brann í júlí 2009.
Hótel Valhöll á Þingvöllum brann í júlí 2009. Fréttablaðið/Arnþór
Fjárfestar vilja byggja veitingastað á vegamótum við Hrafnagjá í austanverðum þjóðgarðinum.



Þingvallanefnd afgreiddi erindið ekki á síðasta fundi sínum. „Nú er unnið að stefnumótun um hvaða þjónustu eigi að veita í þjóðgarðinum en engar ákvarðanir hafa verið teknar um ýmis erindi sem borist hafa til Þingvallanefndar,“ segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður.

Engin hefðbundinn veitinga- og gistiþjónusta hefur verið í þjóðgarðinum á Þingvöllum síðan Hótel Valhöll brann til kaldra kola í júlí 2009. Fyrir um fjórum vikum fól Þingvallanefnd þjóðgarðsverðinum að leggja fram tillögurum hvers konar rekstur og starfsemi eigi að fara þar fram.

Þjóðgarðsverði falið að leggja fram til Þingvallanefndar tillögur um hvers konar
rekstur
og starfsemi eigi að fara fram í þjóðgarðinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×