Geir Jón segir Búsáhaldaskýrsluna aldrei hugsaða til húslestrar Jakob Bjarnar skrifar 4. nóvember 2014 13:01 Geir Jón segir sérkennilegt að fólk vilji ekkert kannast við stjórnmálaskoðanir sínar og ef lögreglan fjallar um þær, þá heiti það njósnir?
Skýrsla sem Geir Jón Þórisson fyrrverandi yfirlögregluþjónn tók saman um Búsáhaldabyltinguna hefur verið mjög til umfjöllunar uppá síðkastið. Vísir náði tali af honum nú í dag en hann er nýkominn heim en hann var, ásamt með góðum hópi Eyjamanna, í skemmtisiglingu á Miðjarðarhafinu. Þriggja vikna ferð. „Já, ég slökkti á símanum á meðan. Var rólegur og naut mín vel meðan landið logaði vegna mín. Ég kom heim í gærkvöldi,“ segir Geir Jón. „Það verður alltaf allt vitlaust þegar ég er erlendis. Síðast þegar ég fór út, árið 2008, þá hrundi bankakerfið.“ Spurður út í skýrsluna sem hann skrifaði og hefur verið mjög til umfjöllunar undanfarna daga og vikur segir Geir Jón það furðu sæta að fólk vilji ekkert kannast við sínar stjórnmálaskoðanir, sem það hafi þó ekki farið í felur með. „Svo þegar lögreglan fjallar um það heitir það njósnir!? En, ég mun ekkert frekar fara í það. Skýrslan er eign lögreglustjórans, nú er búið að afhenda hana með eins klaufalegum hætti og hægt var, skýrsla sem átti aldrei að fara úr húsi. Henni átti að halda saman á einum stað. Aldrei áður í sögu lögreglunnar hefur annað eins gerst og ef lögreglan heldur ekki utan um slíka stóratburði, veit ég ekki hvenær á að gera það? Svo geta menn gagnrýnt textann, og ásakað mig um hitt og þetta, það verður bara að hafa það. Þarna voru lögreglumenn sem sögðu sínar skoðanir og skýrslan var aldrei ætluð til húslestrar.“ Geir Jón segist að öðru leyti hafa tekið þá ákvörðun að ræða þessa skýrslu ekki. „Sem mér var gert af lögreglustjóra að skrifa. Ég vil þó gjarnan að það komi fram að það er rangt að ég hafi kynnt þessa skýrslu í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins. Það er mikill útúrsnúningur. Ég var beðinn um að segja af reynslu minni sem lögregluþjónn af mótmælum á hádegisverðarfundi í Valhöll. Fundurinn var haustið eftir að ég hafði boðið mig fram sem varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Skýrsluna afhenti ég 1. júlí 2012. Hún er eign lögreglustjóra og ég hafði hana aldrei undir höndum,“ segir Geir Jón og ítrekar að það sé af og frá að hann hafi vitnað í skýrsluna við þetta tækifæri. „Það hefði ég aldrei gert. Og lögreglustjóri hvatti þá sem vildu meina að svo hefði verið, að kæra, ef ég hefði brotið trúnað með að vitna í skýrsluna. Það gerði ég aldrei.“ Geir Jón segir þetta alveg skýrt. Og hans stjórnmálaskoðanir hafi aldrei legið fyrir meðan hann starfaði sem lögreglumaður, enda hafi hann átt gott samstarf við fólk úr öllum flokkum. Geir Jón er nú á eftirlaunum og segist njóta lífsins úti í Vestmannaeyjum.
Tengdar fréttir Lögreglan tilnefndi „landsliðið í mótmælum“ Yfirlögregluþjónn í Reykjavík skilgreindi hóp fólks sem landsliðið í mótmælum á misserunum eftir hrunið. 30. október 2014 07:00 Lögregluforingjar á hóteli á meðan undirmennirnir vörðu Alþingishúsið Við setningu Alþingis í janúar 2009 tókust undirmenn í lögreglu á við hörðustu mótmæli eftir hrunið fram að því. Á meðan dvöldu yfirmenn í lögreglunni á hóteli í Hvalfirði. 30. október 2014 07:00 Skýrsla Geirs Jóns: "Sýnir að lögreglan stundar forvirkar rannsóknaraðgerðir“ Lögreglan kærð vegna brota á friðhelgi einkalífsins. 30. október 2014 19:30 Yfirmenn lögreglu á fundi í Hvalfirði þegar upp úr sauð Nokkrir yfirmenn lögreglu sátu fund í Hvalfirði þegar upp úr sauð í Búsáhaldabyltingunni fyrir setningu Alþingis í janúar 2009. Lögreglustjóra hafði þó verið bent á hugsanlega væri rétt að senda þá ekki út úr bænum á þessum tímapunkti. 25. október 2014 12:52 Þingmaður vildi að lögreglan kærði Álfheiði og Steingrím Sérsveitarmaður lýsir því í skýrslu lögreglunnar að Álfheiður Ingadóttir hafi hrópað að honum og kallað hann „lífvarðartitt“. 28. október 2014 10:55 Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíknefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira
Lögreglan tilnefndi „landsliðið í mótmælum“ Yfirlögregluþjónn í Reykjavík skilgreindi hóp fólks sem landsliðið í mótmælum á misserunum eftir hrunið. 30. október 2014 07:00
Lögregluforingjar á hóteli á meðan undirmennirnir vörðu Alþingishúsið Við setningu Alþingis í janúar 2009 tókust undirmenn í lögreglu á við hörðustu mótmæli eftir hrunið fram að því. Á meðan dvöldu yfirmenn í lögreglunni á hóteli í Hvalfirði. 30. október 2014 07:00
Skýrsla Geirs Jóns: "Sýnir að lögreglan stundar forvirkar rannsóknaraðgerðir“ Lögreglan kærð vegna brota á friðhelgi einkalífsins. 30. október 2014 19:30
Yfirmenn lögreglu á fundi í Hvalfirði þegar upp úr sauð Nokkrir yfirmenn lögreglu sátu fund í Hvalfirði þegar upp úr sauð í Búsáhaldabyltingunni fyrir setningu Alþingis í janúar 2009. Lögreglustjóra hafði þó verið bent á hugsanlega væri rétt að senda þá ekki út úr bænum á þessum tímapunkti. 25. október 2014 12:52
Þingmaður vildi að lögreglan kærði Álfheiði og Steingrím Sérsveitarmaður lýsir því í skýrslu lögreglunnar að Álfheiður Ingadóttir hafi hrópað að honum og kallað hann „lífvarðartitt“. 28. október 2014 10:55