Ótrúlegir endurfundir: Grét þegar hún fann ættingja sína í Noregi fyrir tilviljun Stefán Árni Pálsson skrifar 4. nóvember 2014 19:30 Hér má sjá vinkonu Steinunnar ásamt Ivari og Bitten þegar þau hittust í fyrsta sinn. Steinunn er lengst til hægri. vísir
Steinunn Helga Snæland, búsett í Noregi, lenti í heldur betur magnaðri upplifun á dögunum sem hún segir vart eiga sér margar hliðstæður. Steinunn náði með ótrúlegum hætti að koma vinkonu sinni frá Bandaríkjunum í samband við ættingja sína frá Noregi. Sagan er með hreinum ólíkindum. Árið 2004 var Steinunn ráðin til starfa hjá Sameinuðu Þjóðunum í Búrúndí þar sem hún kynntist fólki af hinum ýmsu þjóðernum. Steinunn vann fyrir NATO frá árunum 2002 til 2003. Hún starfaði í Búrúndi til ársins 2007 en var þá beðin um að flytja sig yfir til Kongó til ársins 2010. Steinunn flutti síðan alfarið til Noregs árið 2010 og heldur hún enn miklu sambandi við vini sem hún eignaðist á tíma sínum starfandi í framandi löndum. Steinunn kynntist til að mynda einni bandarískri konu sem varð henni afar náin í Búrúndi. Í dag starfar sú kona sem lögfræðingur hjá Sameinuðu Þjóðunum. „Í fyrsta sinn sem ég hitti hana, og hún heyrði að ég var Íslendingur, spurði hún mikið hvort ég þekkti vel til í Noregi. Mér fannst spurningin einkennileg og jafnframt lítt spaugileg, en sagðist hafa einu sinni komið þangað, að heimsækja systur mína, sem hefði búið þar í nokkur ár.“ Konan tilkynnti Steinunni að hún væri af norskum ættum og dreymdi um að einn daginn kæmist hún í tæri við fólk sem gæti sýnt henni heimahaga ömmu hennar og jafnvel hjálpað henni að finna ættingja sína.Förinni heitið til Noregs Árin liðu og þær vinkonurnar héldu góðu sambandi. Þegar Steinunn fluttist til Noregs talaði konan um það við hana að hún ætlaði sér að láta draum sinn rætast, heimsækja landið og hafa upp á ættingjum sínum. Konan missti síðan ömmu sína í janúar á þessu ári og höfðu þær verið mjög nánar. Eftir andlát hennar ákvað konan að nú skyldi hún láta verða af því að ferðast til Noregs. Steinunn var staðráðin í því að aðstoða vinkonu sína og vildi ólm taka á móti henni. „Hún sendi mér ótrúlega gott fjölskyldutré og fæðingarstaði sem hún hafði fengið upplýsingar um frá ömmu sinni og systur hennar. Ættin reyndist vera frá Grimstad, sem er næsti bær við bæjarfélagið þar sem ég bý.“Hér má sjá hvar Grimstad er í Noregi.vísir/google mapsSteinunn heimsótti bæjarskrifstofur þar í vor og sagði starfsmönnum frá aðstæðum. „Mér var afar vel tekið, en bent á að halda aftur í minn heimabæ, þar sem minjasafnið væri bæði minja og skjalasafn fyrir sýsluna, og þeir ættu að geta hjálpað mér.“ Þegar Steinunn mætti með pappírana á safnið var verið að vinna að því að gera safnið upp. Var það því lokað stóran hluta af sumrinu. „Konan var á leiðinni til okkar í lok ágúst, og safnið opnaði þremur vikum fyrr. Þar fékk ég samband við mann sem tók ættartréð til sín. Hann sagðist ætla að leita eins og hann gæti að fjölskyldumeðlimum, sem enn væru á lífi. Við vorum sammála um að það væri aðallega um að ræða tvo bræður, Richard og Ivar Henrikssen og kannski eina konu til, sem var líka skráð með einn son.“ Fram kom að Ivar væri giftur konu sem væri kölluð Bitten. Enginn fannst „Viku áður en vinkona mín kom, sneri ég aftur á safnið. Maðurinn hafði hafði þá leitað og leitað. Hann hafði náð að lagfæra nokkrar villur í ættartrénu, fæðingar- og dánarár, en hann hafði ekki fundið neinn ættingja, að frátöldum Richard. Ekkert hafði maðurinn fundið um Ivar bróður hans og alla hans fjölskyldu.“ Steinunn tók á móti vinkonu sinni seint í sumar og hafði litla von um að hún gæti aðstoðað hana í leit sinni. „Ég neyddist til að segja henni að það væri ekki nokkurn mann að finna á lífi úr fjölskyldunni en hins vegar gætum við farið einn daginn út í Fjære kirkju, þar sem fjölskyldugrafreiturinn væri.“ Steinunn segir að konan hafi eðlilega verið mjög svekkt en á sama tíma þakklát fyrir það sem Steinunn hafði lagt á sig. Hún hafi samt endilega viljað heimsækja kirkjugarðinn. „Að keyra til Fjære frá mér tekur um 45 mínútur, en aðeins meira með viðkomu í antikbúð sem vinkona mín vildi endilega skoða.“Ótrúleg tilviljun Þær lögðu af stað snemma morguns og fyrirhugað var að mæta á staðinn rétt eftir klukkan tíu. Ferð þeirra tafðist nokkuð og þurftu þær meðal annars að snúa við til sækja kreditkort og ökuskírteini Steinunnar. Þær mættu ekki á staðinn fyrr en um klukkan eitt eftir hádegi. „Þegar við komum til Fjære stóð einn bíll á bílastæðinu, og ein öldruð kona við hlið hans. Ég hugsaði með mér að þarna væri kona sem væri á svipuðum aldri og þeir bræðurnir og kannski myndi hún eftir þeim sem börnum.“ Steinunn heilsaði konunni og spurði hana hvort hún þekkti vel til í Grimstad og Fjære. „Hún sagði við mig að það mætti nú svo sem segja það. Ég sagði henni því næst frá vinkonu minni og hvernig ég hefði kynnst henni og hvað hún hefði lengi haft áhuga á að finna sínar rætur í Noregi. Ég var eiginlega að spyrja hana í örvæntingu.“ Þá sagði Steinunn konunni frá ættartrénu. „Ég fór síðan að tala um bræður, einn að nafni Richard Henrikssen og þá greip konan fram fyrir mér og spurði hvort hinn héti Ivar. Ég missti andann, og stundi: „ha, þekkir þú hann?“ Konan svaraði mér að hún væri gift Ivari.“ Steinunn spurði konuna hvort hún væri nokkuð kölluð Bitten og svo reyndist vera. „Vinkona mín og kona hennar stóðu náfölar og fylgdust með þessu samtali, á hrognamáli sem þær skildu ekki, en þegar þarna var komið við sögu, höfðu þær áttað sig á því hvaða kona þetta væri og trúðu ekki sínum eigin eyrum. Vinkona mín hélt í marga daga að ég hefði sett þetta á svið.“ Þau hjónin höfðu verið í kirkjugarðinum í um tíu mínútur áður en Steinunn mætti með föruneyti sitt með sér. Þau voru mætt til að hitta kirkjugarðsvörðinn þar sem Richard, bróðir Ivars, væri orðinn það aldraður að hugsanlega þyrfti að breyta fjölskyldulegsteininum og undirbúa hann fyrir Richard. „Þau voru að flýta sér á hótel í Grimstad og ætluðu alls ekki að stoppa lengur en fimmtán mínútur á staðnum þar sem þau voru svo þreytt eftir sex tíma akstur að kirkjunni.“ Hjónin búa langt frá Grimstad og voru í stuttu stoppi á svæðinu. „Ef við hefðum komið á þeim tíma sem við ætluðum, þá hefðum við aldrei hitt þau.“Fékk það sem hún leitaði eftir Steinunn segir að Ivar hafi að vonum verið hálfsjokkeraður, þegar hersingin kom niður í kirkjugarðinn og farið að útskýra málið fyrir honum. „Ivari var mjög brugðið þegar við komum að honum en þegar eðli málsins fór að síast inn hjá honum. Þá allt í einu spurði hann hvort konan væri barnabarn Hazel. Þá svaraði vinkona mín að hún væri amma hennar. Þá spurði Ivar einnig hvort hún væri dóttir Simon og hún svaraði því einnig játandi. Ivar sagði henni þá sögur af því að þegar hann var barn á eftirstríðsárunum hefðu alltaf komið svokallaðir Ameríkupakkar á pósthúsið. Þá var amma vinkonu minnar að senda föt af pabba hennar til Ivars, og amerískt tyggigúmmí. Vinkona mín stóð bara klökk og grét, þegar þarna var komið við sögu.“ Steinunn segir að þau hafi síðan eytt heilum degi saman daginn eftir. „Núna eru þau öll í sambandi og er vinkona mín komin í samband við dætur hjónanna.“ Tengsl konunnar við Ivar eru þau að langafi hennar og afi Ivars voru bræður. „Þetta var bara allt svo fáránlegt. Þegar ég sá þessa konu í hlaðinu við kirkjugarðinn hugsaði ég að þetta væri síðasta hálmstráið.“ Daginn eftir afhenti Ivar konunni óvæntan glaðning. „Önnur dóttir hjónanna var áður búin að grafast fyrir um í ættarsögu fjölskyldunnar. Þau hjónin hringdu í hana kvöldið áður og hún sendi yfir hundrað blaðsíður af gömlum ljósmyndum, ættartrénu og hluta af ættarsögunni. Þau létu prenta þetta út á hótelinu og færðu henni þegar við borðuðum saman hádegisverð. Vinkona mín stóð með þetta í höndunum og táraðist og táraðist.“
Mest lesið Óku á yfir 60 og missa ökuréttindin Innlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Stjúpsonur norska krónprinsins grunaður um nauðganir Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Innlent Svona verða bílastæðagjöldin hjá Háskóla Íslands Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Sjá meira