Innlent

Garnaveiki í Héraðshólfi

Samúel Karl Ólason skrifar
Veikin uppgötvaðist við eftirlit dýralæknir Matvælastofnunar í sláturhúsi og af þeim níu sýnum sem send voru til greiningar voru fimm jákvæð.
Veikin uppgötvaðist við eftirlit dýralæknir Matvælastofnunar í sláturhúsi og af þeim níu sýnum sem send voru til greiningar voru fimm jákvæð. Vísir/Magnús Hlynur
Garnaveiki var staðfest á sauðfjárbúi í Héraðshólfi á mánudaginn, nánar tiltekið í Hróarstungu. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun hefur garnaveiki ekki greinst á því svæði síðan fyrir fjárskipti sem voru um árið 1990.

„Garnaveiki er ólæknandi smitsjúkdómur í jórturdýrum. Á bæjum sem garnaveiki greinist á gilda ýmsar takmarkanir sem lúta að því að hindra smitdreifingu. Héraðsdýralæknir Matvælastofnunar mun í kvöld halda fund með bændum í Hróarstungu þar sem viðbrögð við sjúkdómnum verða rædd,“ segir í tilkynningunni.

Veikin uppgötvaðist við eftirlit dýralæknir Matvælastofnunar í sláturhúsi og af þeim níu sýnum sem send voru til greiningar voru fimm jákvæð.

Sjúkdómurinn orsakast af lífseigri bakteríu af berklaflokki og helsu einkenni hennar eru hægfara vanþrif ásamt skituköstum. Einnig getur verið nokkuð um „heilbrigða smitbera“ í hjörðum sem veikin kemur upp í.

Meðgöngutími í sauðfé er 1-2 ár eða lengri. Garnaveikibakterían veldur bólgum í mjógörn og oft einnig í langa, ristli og lifur. Sýklarnir berast út með saurnum og geta lifað í eitt til eitt og hálft ár í óhreinindum og pollum umhverfis gripahús, við afréttargirðingar, í sláturúrgangi og í líffærum skepna sem drepast út um haga. Sýking verður um munn með saurmenguðu fóðri og vatni.

Markmið reglugerðar um garnaveiki er að útrýma henni og þar eru meðal annars ákvæði um þær takmarkanir sem gilda um garnaveikibæi.

„Þar á meðal er að óheimilt er að láta til lífs sauðfé, geitur eða nautgripi í 10 ár frá síðustu greiningu á garnaveiki eða vanrækslu á bólusetningu. Reglugerðin kveður einnig á um skyldu til bólusetningar sauðfjár á tilteknum svæðum á landinu.“

Frekar upplýsingar um veikina má sjá á heimasíðu Matvælastofnunar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×