Fimmtán hundruð missa atvinnuleysisbætur á næsta ári Höskuldur Kári Schram skrifar 22. desember 2014 18:45 vísir/daníel
Tæplega fimmtán hundruð manns munu að óbreyttu missa rétt til atvinnuleysisbóta á næsta ári vegna styttingar bótatíma. Búist er við því að helmingur þessa fólks muni leita til sveitarfélaga eftir fjárhagsaðstoð en kostnaður vegna þessa hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum. Fimm þúsund og átta hundruð manns voru án vinnu í síðasta mánuði og mældist atvinnuleysi 3,1 prósent samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þegar mesta var í nóvember 2009 voru rúmlega 13 þúsund manns án vinnu en síðan þá hefur atvinnuleysi farið minnkandi. Alþingi samþykkti í síðustu viku að stytta rétt fólks til atvinnuleysisbóta úr þremur árum í tvö og hálft. Breytingarnar taka gildi um næstu áramót en þá missa um fimm hundrað manns rétt á bótum. „Við erum búin að hitta þessa einstaklinga á síðustu tveimur mánuðum og gera þeim grein fyrir því hvað er í pípunum og hvetja menn til aðgerða í því samhengi,“ segir Gissur Pétursson forstjóri Vinnumálastofnunar. Fólk sem missir atvinnuleysisbætur getur leitað til sveitarfélaga eftir fjárhagsaðstoð en að óbreyttu missa um fimmtán hundruð manns bótarétt á næstu tólf mánuðum. „Ef við gefum okkur þær forsendur að tæplega helmingur af þeim óski eftir fjárhagsaðstoð þá kostar þetta um hálfan milljarð á ári fyrir sveitarfélögin. Þá bætist þessi hálfi milljarður við þá fimm milljarða sem sveitarfélögin verja nú þegar til fjárhagsaðstoðar og hefur tvöfaldast frá árinu 2009,“segir Karl Björnsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Viktor og Kári heltast úr lestinni Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Segir upp hjá RÚV og snýr sér að pólitík Ellefu verða í framboði til embættis forseta Íslands Landlæknir fer með ákvörðun Persónuverndar fyrir dóm Stór hópur fanga sem ekki treystir stofnunum Viktor og Kári heltast úr lestinni Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Sjá meira