Kærðu brot hæstaréttardómara: Segir aulafyndni ekki við hæfi í svo alvarlegu máli Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 25. júní 2014 09:35 Þorsteinn, t.v., gagnrýnir fullyrðingar Skúla, t.h.
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, gagnrýnir formann dómarafélagsins, Skúla Magnússon, í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag. Segir hann þær fullyrðingar hans að eðlilegasti farvegurinn fyrir brot dómara í opinberu starfi væri að kæra dómara til nefndar um dómarastörf ekki standast skoðun auk þess sem hann segir aulafyndni Skúla í Fréttablaðinu í gær sjálfstætt áhyggjuefni. Dótturfyrirtæki Samherja, Polaris Seafood kærði hæstaréttardómarann Ingveldi Einarsdóttur til lögreglu sem heimilaði húsleit og haldlagningu gagna hjá félaginu eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær. Þorsteinn segir í greininni þau gögn ekki til staðar sem dómari kveðst hafa byggt á við afgreiðslu þvingunaraðgerðar gegn fyrirtækinu. Hann tekur fram að kæran um ætluð brot Ingveldar byggi á skriflegri staðfestingu héraðsdóms á broti og aðfinnslum Hæstaréttar við störf hennar. „Ávirðingar formanns dómarafélagsins um ómálefnalegar ástæður og grundvöll kærunnar eiga því ekki við rök að styðjast.“Engum sæmir að hæðast að grafalvarlegu málinu Þar fer hann ómjúkum orðum um þá málsmeðferð sem formaður dómarafélagsins, Skúli Magnússon, telur eðlilegasta þegar svona mál koma upp. Að sögn Skúla ætti að senda kvörtun til nefndar um dómarastörf. „Þetta stenst ekki skoðun. Enginn ætti að vera dómari í eigin sök og dómarar njóta sem betur fer ekki þeirrar sérstöðu í samfélaginu að nefnd á þeirra vegum geti úrskurðað um lögbrot,“ skrifar Þorsteinn í greininni. Hann segist jafnframt hafa á því áhuga að vita hversu mörg mál hafa farið í gegnum nefndina á undanförnum árum og fá upplýsingar um afdrif þeirra. „Það er sjálfstætt áhyggjuefni að formaður dómarafélagsins reyni að gera lítið úr málinu með þeirri aulafyndni sem titill greinar hans í Fréttablaðinu í gær „Út af með dómarann?“, ber með sér,“ segir Þorsteinn. „Um er að ræða grafalvarlegt mál sem engum sæmir að hæðast að.“
Tengdar fréttir Réttlát málsmeðferð Undanfarna daga hafa fjölmiðlar fjallað um kæru Polaris Seafood á hendur dómara sem heimilaði húsleit og haldlagningu gagna hjá félaginu. 25. júní 2014 08:56 Mest lesið Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Erlent Fleiri fréttir Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Sjá meira
Réttlát málsmeðferð Undanfarna daga hafa fjölmiðlar fjallað um kæru Polaris Seafood á hendur dómara sem heimilaði húsleit og haldlagningu gagna hjá félaginu. 25. júní 2014 08:56